Erlendir greinendur lækka verðmöt sín um ríflega fjórðung eftir áfallið hjá Oculis
Greinendur fjölmargra erlendra fjármálastofnana hafa að meðaltali lækkað verðmat sitt á Oculis um ríflega fjórðung eftir að eitt lyfjum þess tókst ekki að ná markmiðum sínum í lykilrannsókn en telja félagið eftir sem áður verulega undirverðlagt á markaði. Gengi bréfa Oculis hélt áfram að lækka þegar markaðir opnuðu vestanhafs í dag.
Tengdar fréttir
Greinendur „hissa“ með niðurstöðuna hjá Oculis en mæla enn með kaupum
Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.
Vogunarsjóðsrisi fjárfestir í íslenskum líftæknifélögum fyrir milljarða
Bandaríska félagið Millennium Management, einn stærsti og áhrifamesti vogunarsjóður í heimi, er kominn í hóp stærstu hluthafa tveggja skráðra íslenskra líftæknifélaga eftir að hafa stækkað stöðu sínu verulega á fyrstu mánuðum ársins með kaupum fyrir marga milljarða.
Guggenheim metur Oculis hæst allra greinenda í sínu fyrsta verðmati
Bandaríski fjárfestingabankinn Guggenheim hefur bæst í hóp fjölda erlendra fjármálastofnana sem fjalla reglulega um líftæknifyrirtækið Oculis og verðmeta það núna hæst allra greinenda.