Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. júní 2026 15:07 Mette-Marit var með súrefnisgleraugu þegar hún kom fram þann 17. maí. EPA Hákon, krónprins Noregs, snýr fyrr heim úr opinberri ferð sinni til Japans vegna veikinda Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir hjónanna gerir einnig hlé á námi sínu í Ástralíu til að verja tíma með móður sinni.
Mette-Marit greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur nýlega sést með súrefnisgleraugu. „Ég er að fara heim þar sem krónprinsessan er veik, svo ég verð að stytta ferðina. Ég bið alla þá sem ég ætlaði að heimsækja síðasta daginn afsökunar,“ sagði Hákon samkvæmt umfjöllun NRK. „En núna er mikilvægt að snúa heim og vera með Mette.“ Ingrid Alexandra, dóttir hjónanna og krónprinsessa, stundar núna háskólanám í Sydney í Ástralíu en hún ætlar einnig að snúa aftur heim til Noregs. Hákon segir ástæðuna vera veikindi móður hennar. „Hún ætlar að ljúka náminu í Ástralíu en við þurfum að sjá til hversu lengi hún dvelur heima,“ sagði hann. Ákærur og umdeilt vinasamband Mikið hefur gengið á í lífi Mette-Marit undanfarið ár. Auk þess að hafa glímt við veikindin var Marius Borg Høiby, sonur hennar úr fyrra sambandi, kærður í 39 ákæruliðum, þar af fyrir fjórar nauðganir gegn konum. Réttað var yfir honum og mun niðurstaðan liggja fyrir í júní. Hann neitaði sök í alvarlegustu ákæruliðunum. Þá komst upp um vinasamband Mette-Marit og Jeffrey Epstein. Í tuttugu mínútna löngu viðtali við blaðamann NRK sagðist hún hafa kynnst Epstein í gegnum sameiginlega kunningja. Mette-Marit dvaldi meðal annars á heimili Epstein í Flórída árið 2013 og átti í umtalsverðum tölvupóstasamskiptum við hann. Hún hafi sjálf slitið sambandinu þegar hún frétt að Epstein væri ekki góður maður.
Noregur Kóngafólk Mál Jeffrey Epstein Mál Mariusar Borg Høiby Haraldur V Noregskonungur Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira