Menning

Sam­fé­lag í bleyti fram­lag Ís­lands á Feneyjartvíæringnum í arki­tektúr

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Sýningarteymið að baki sýningunni: Marcos Zotes, Kristín Eva Ólafsdóttir, Rán Flygenring, Perla Dís Kristinsdóttir, Hrólfur Karl Cela, Nils Wiberg.
Sýningarteymið að baki sýningunni: Marcos Zotes, Kristín Eva Ólafsdóttir, Rán Flygenring, Perla Dís Kristinsdóttir, Hrólfur Karl Cela, Nils Wiberg. Aldís Pálsdóttir

Sýningin Samfélag í bleyti hefur verið valin sem framlag Íslands á 20. alþjóðlega Feneyjatvíæringinn í arkitektúr sem fer fram árið 2027. Sýningin setur íslenska baðmenningu fram sem mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs en miðstöðin hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. 

„Samfélag í bleyti veltir upp spurningum um samfélagslegt hlutverk arkitektúrs og setur íslenska baðmenningu fram sem einstakan vettvang jafnræðis og mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans,“ segir í tilkynningunni.

Sýningarstjóri er Marcos Zotes, einn eigenda Basalt arkitekta, og með honum í teymi eru arkitektarnir Hrólfur Karl Cela og Perla Dís Kristinsdóttir, hönnuðirnir Kristín Eva Ólafsdóttir og Nils Wiberg frá Gagarín, auk Ránar Flygenring, mynd- og rithöfundar.

„Á tímum aukinnar félagslegrar einangrunar hefur sjaldan verið meiri þörf fyrir rými sem styðja við samveru og mannleg tengsl. Samfélag í bleyti byggir á séríslenskri baðmenningu og skoðar hvernig sundlaugar og baðstaðir hafa þróast í mikilvæga félagslega innviði þar sem fólk mætist á jafnræðisgrundvelli, óháð aldri, stöðu eða uppruna,“ segir um sýninguna.

Menningin sem skapist í vatninu verði vettvangur fyrir óformleg samskipti og samfélagslega samheldni. Sýningin kortleggur hversdagslegar venjur íslenskrar baðmenningar og kannar hvernig þessi sameiginlega reynsla af vatni getur styrkt tengsl milli fólks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.