Formúla 1

Tísku­hús blandar sér í For­múlu 1

Andri Broddason skrifar
Formúlu 1 liðið Alpine og tískuhúsið Gucci byrja samstarf á næsta tímabili.
Formúlu 1 liðið Alpine og tískuhúsið Gucci byrja samstarf á næsta tímabili. Alpine/Visir

Ítalska tískuhúsið Gucci verður aðalstyrktaraðili Formúlu 1-liðsins Alpine. Samningurinn tekur gildi á næsta tímabili og mun liðið innihalda nafn Gucci ásamt því að bílarnir verða í litum tískuvörumerkisins.

Lið Renault í Formúlu 1 skipti um nafn og útlit árið 2021. Liðið fékk nafnið Alpine og einkenndist af bláum og bleikum bílum. Þegar samstarf Alpine og Gucci tekur gildi mun liðið heita „Gucci Racing Alpine Formula One Team“ og mun bera litaþema Gucci. Litaþemað einkennist af tveim dökkgrænum röndum með rauðri rönd á milli.

Flavio Briatore er einn af aðalstjórnendum liðsins og nefnir að þetta samstarf opni á marga möguleika fyrir bæði kappakstursliðið og tískuhúsið.

„Þetta lið er þekkt fyrir að gera hluti öðruvísi og hefur sýnt að tíska getur komið fyrst í mark í Formúlu 1.“

Flavio Briatore er þekktur innan Formúlu 1 en skandalar hafa einkennt feril hans. Hann var sakaður um svindl í Singapúr-kappakstrinum árið 2008 þegar hann var stjóri Renault-liðsins. Þá átti hann að hafa sagt öðrum ökumanni sínum að klessa viljandi á svo að hinn ökumaðurinn í liði hans, Fernando Alonso, myndi fá forskot í kappakstrinum. Alonso endaði á að vinna keppnina þökk sé liðsfélaga hans.

Eftir kappaksturinn var Briatore ásakaður um að hagræða keppninni og endaði hann á að þurfa að segja af sér sem stjóri Renault.

Hann gekk aftur til liðs við Renault 2024 en þá var liðið búið að breyta nafninu sínu í Alpine. Þegar hann kom til baka til liðsins var staða liðsins ekki góð. Hann fékk fulla stjórn á liðinu og er hann búinn að bæta bæði árangur og fjárhagslega stöðu liðsins.

Alpine liðið hefur aldrei byrjað jafn vel eftir að liðið breytti um nafn og stendur liðið í fimmta sæti með 35 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×