Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar 28. maí 2026 12:02 Svona hljómar fyrirsögn á grein Morgunblaðsins sem unnin var upp úr gögnum viðskiptaráðs um það hversu hátt hlutfall nemenda úr einstökum grunnskólum í Reykjavík útskrifast úr framhaldsskóla. Vísað er í úttekt viðskiptaráðs í greininni og sagt að þessi munur bendi til þess að nemendur búi við afar ólík tækifæri í grunnskólakerfinu. Talað er um að án inngripa sé hætta á að grunnskólakerfið þróist áfram í átt að félagslega aðgreindum skólum, þar sem búseta og grunnskóli hafi ráðandi áhrif á framtíðarmöguleika barna. Viðskiptaráð segist fagna því að fram séu komin gögn sem varpi ljósi á stöðuna í menntakerfinu og segir að um langt skeið hafi skortur á gögnum takmarkað möguleika til að meta stöðu íslenskra skóla og bregðast við þeim vanda sem birtist meðal annars í slökum námsárangri í alþjóðlegum samanburði. Viðskiptaráð telur að samræmdir mælikvarðar séu forsenda jafnræðis og af gögnunum sé ljóst að þörf er á að taka upp samræmda mælikvarða að nýju við lok grunnskóla og að framhaldsskólum verði heimilt að taka mið af þeim við innritun. Með því mætti stuðla að því að nemendur séu metnir á sambærilegum forsendum óháð því hvaða grunnskóla þeir sækja segir í úttektinni. Ykkur að segja þá er viðskiptaráð ekki að finna upp hjólið og því miður er birtingarmynd skoðanna þeirra ekki einstaklingsvæn heldur þess eðlis að draga börn í dilka og breikka bilið á milli skóla enn frekar. Í úttekt viðskiptaráðs er það látið líta út eins og grunnskólarnir séu vandamálið og það að einkunnir hafi verið birtar í bókstöfum en ekki tölustöfum. Þetta er alls ekki svona einfalt. Við sem störfum í skólum landsins höfum verið að benda á það lengi að skútan sé að sigla í strand og það þurfi að grípa inn í heildrænt þvert á skólastig. Ég er ekki sammála viðskiptaráði varðandi það að gögnin hafi vantað því að við fagfólkið á gólfinu höfum haft í höndunum gögn sem við höfum vísað í máli okkar til stuðnings þegar við höfum bent á vandann. Greinar eins og þessi sem ég er að vísa í hér að ofan og birtist inni á vefsíðu Morgunblaðsins er til þess fallin að leiða til sundrungar frekar en að stíga skrefið í átt til lausnar. Við skólafólk fáum yfir okkur reiðilestur úti í samfélaginu fyrir það að vera ekki að standa okkur þegar svona greinar birtast opinberlega og börnin í „rauðu“ skólunum skammast sín fyrir skólana sína. Það er mjög erfitt að elda hollan þriggja rétta málsverð fyrir 25 einstaklinga svo að allir verði saddir ef hráefnið er bara mjólk og brauð fyrir fimm. Við kennarar höfum margbent á vöntun á námsgögnum og úrræðaleysi vegna barna með fjölþættan vanda, svo ég tali nú ekki um viðhald skólahúsnæðis og annarra þátta sem hafa setið á hakanum í skólakerfinu. Það að birta svona lista og benda á einstaka skóla leysir engan vanda heldur eykur hann frekar. Ég hef verið viðriðin skólastarf í yfir þrjátíu ár og hef haft mikinn áhuga á málaflokknum eins og flestir í minni stétt. Ég tel að eitt af því sem ég hef lært mest af í mínu starfi er að þora að prófa að fara á milli ólíkra skóla í Reykjavík. Það hefur veitt mér yfirsýn sem hefur gagnast mér í starfi. Í öllum þeim skólum sem ég hef starfað í hef ég unnið með frábæru, metnaðarfullu starfsfólki sem hefur brunnið fyrir velferð barna. Þegar ég horfi á lista viðskiptaráðs þá endurspeglar hann ekki það góða starf sem unnið er í grunnskólunum. Hvar eru faglegheitin hjá Morgunblaðinu ? Er neyðin virkilega svona mikil að það þarf að nota svona klikkbeitu á greinarnar og villa um fyrir fólki til að ná til lesenda ? Því miður þá eru það svona greinar sem breikka bilið á milli skóla, búa til gjá út í samfélagið og skapa úlfúð. Tölum faglega um skólastarf og á þann hátt að það bitni ekki á börnunum í skólunum. Tökumst á um aðgerðir á réttum vettvangi en ekki bara til að fá klikk og safna lesendahópi. Gott skólastarf er dauðans alvara og ber að meðhöndla af nærgætni og fagmennsku. Við erum að tala um fjöregg þjóðarinnar og líf ófleyga einstaklinga. Höfundur er grunnskólakennari og sáttamiðlari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rakel Linda Kristjánsdóttir Mest lesið Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar