Fljúga til Færeyja árið um kring Árni Sæberg skrifar 28. maí 2026 10:46 Slökkvilið Vogaflugvallar heiðraði flugvél Icelandair með vatnsboga þegar henni var lent þar í maí 2024. Flugvélin er af gerðinni Dash 8 Q400 og tekur 76 farþega. Kringvarpið/Ólavur Frederiksen Icelandair hefur ákveðið að framlengja flug til Færeyja og verða eyjarnar nú heilsársáfangastaður í leiðakerfi félagsins.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Icelandair segir að félagið hafi hafið flug til Færeyja í maí 2024 og flugleiðin hafi verið vinsæl frá upphafi. Flogið verði þrisvar sinnum í viku yfir vetrartímann, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, og áfangastaðurinn tengist vel við leiðakerfi Icelandair til og frá Keflavíkurflugvelli. Flugtími sé ein klukkustund og 45 mínútur. Færeyjar séu í miklum vexti sem ferðamannastaður enda hafi þær upp á margt að bjóða. Stórbrotin og óspillt náttúra einkenni eyjarnar sem staðsettar eru mitt á milli Íslands og Skotlands. Flugið milli Íslands og Færeyja gegni einnig mikilvægu hlutverki í að tengja Færeyjar við Norður-Ameríku í gegnum Ísland og Icelandair hafi fundið fyrir auknum áhuga á þeim tengingum, ekki síst frá bandarískum ferðamönnum sem vilji heimsækja bæði Ísland og Færeyjar í einni ferð. „Færeyjaflugið fór strax vel af stað og frá upphafi var markmiðið að stefna að flugi allt árið. Það er því mjög ánægjulegt að tilkynna um heilsársflug nú aðeins tveimur árum eftir að við byrjuðum að fljúga þangað. Færeyjar eru einstakur og vaxandi áfangastaður sem hefur upp á margt að bjóða fyrir okkar viðskiptavini. Tengsl Færeyja og Íslands eru sterk og með heilsársflugi viljum við styðja enn frekar við þau, um leið og við opnum á frekari tækifæri til tenginga við Norður-Ameríku,“ er haft eftir Tómasi Ingasyni, framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.
Icelandair Færeyjar Flug Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira