Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Aron Guðmundsson skrifar 27. maí 2026 09:32 Viktor Bjarki skaust fram á sjónarsviðið með FC Kaupmannahöfn á nýafstöðnu tímabili. Það stefndi allt í að hann myndi spila sinn fyrsta landsleik um komandi helgi en meiðsli settu strik í reikninginn Vísir/Bjarni Hinn sautján ára gamli Viktor Bjarki Daðason stimplaði sig inn af krafti á nýafstöðnu tímabili í atvinnumennskunni sem reyndist liði hans þó afar erfitt. Íslendingurinn ungi þurfti síðan að bíta í það súra verða snuðaður um sinn fyrsta landsleik eftir að hafa meiðst í lokaleik tímabilsins.
Eftir langt og strangt en afar viðburðaríkt tímabil, það fyrsta sem leikmaður í aðalliði FC Kaupmannahafnar, er Viktor Bjarki nú mættur heim til Íslands í frí. Með öllu réttu ætti hann að vera mættur til Japans með íslenska landsliðinu og að fara spila sinn fyrsta A-landsleik en meiðsli, sem ungstirnið varð fyrir í lokaleiknum í Danmörku settu strik í reikninginn. „Ég meiddist í síðasta leik aftan í læri. Ég gæti verið betri en er bara fínn. Ég set allan þungann aftan á lærið í leik gegn Bröndby og lærvöðvinn rifnar aðeins. Svona er þetta bara í fótboltanum,“ segir Viktor Bjarki í samtali við íþróttadeild Sýnar og verður hann frá í um 10-12 vikur vegna meiðslanna. Svekkelsið mikið þar sem Viktor hafði verið kallaður í íslenska landsliðið fyrir komandi verkefni liðsins gegn Japan. Drengurinn sautján ára gamli þarf því að bíða lengur eftir sínum fyrsta A-landsleik. Svekkelsið töluvert. „Já auðvitað. Stórt verkefni. Fyrsta landsliðsverkefnið mitt með A-landsliðinu. Það hefði verið stórt. Hefði verið gaman. Ég fæ vonandi önnur tækifæri og kem bara sterkari til baka. Ég hef aldrei farið til Japan. Hefði verið geggjað að fara til Tókýó. Ég bíð bara spenntur eftir því sem tekur við í framhaldinu.“ Fengu að heyra það Tímabilið nýafstaðna í Kaupmannahöfn var eftirminnilegt og gott fyrir Viktor Bjarki sem tókst að heilla, meðal annars í Meistaradeild Evrópu, en á heildina litið var það samt mjög erfitt fyrri FC Kaupmannahöfn sem endaði í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar og vann ekki titil eftir að hafa tapað bikarúrslitaleik gegn Midtjylland. „Komandi inn í liðið sem nýr og ungur leikmaður sem var að vonast eftir því og búast við því að vinna allt það sem í boði var. Svona gerðist þetta bara núna.“ Stuðningsmennirnir skiljanlega ekki sáttir með gengið. „Nei auðvitað ekki. Bara eins og þeir eiga að vera. Þetta var ekki samkvæmt þeim standard sem settur er hjá FC Kaupmannahöfn. Þeir voru ekki ánægðir og maður fékk skít. Við komum bara sterkari til baka og gefum þeim gott tímabil á næsta tímabili. Ég held að við séum leikmennina og getuna til þess. Þetta var bara eitt tímabil núna þar sem að við vorum ekki nógu góðir og þurfum bara að taka okkur saman og koma betri inn í næsta tímabil.“ Fótboltinn óútreiknanlegur Viktor þó sáttur með sjálfan sig. Hann kom að tólf mörkum á nýafstöðnu tímabili, skoraði meðal annars þrjú í Meistaradeild Evrópu og eitt þeirra gegn Barcelona á Nývangi. Kastljósið beindist að Íslendingnum unga sem sér fyrir sér að halda áfram að spila með FC Kaupmannahöfn. Samningur hans við félagið rennur út árið 2028. „Já það er planið en svo veit maður aldrei hvað gerist í fótboltanum. Ég elska FC Kaupmannahöfn og geri allt fyrir FCK á meðan að ég er þarna. Svo sjáum við bara til hvernig framtíðin verður.“ Viktor Bjarki skoraði einstaklega snoturt mark. FCK Finnurðu fyrir miklum áhuga á þínum kröftum annars staðar frá? „Ég veit persónulega ekkert mikið um það. Læt umboðsmann minn um þessi mál en auðvitað finnur maður fyrir einhverri athygli utan frá. Það er bara venjulegt en ég pæli ekkert í því.“ Telurðu að það sé möguleiki á því að þú færir þig um set fyrir næsta tímabil? „Ég veit það ekki. Við sjáum bara hvernig fótboltinn er. Framtíðin er. En ég geri allt fyrir FC Kaupmannahöfn núna. Spila með FCK og er stoltur af því að vera leikmaður FCK. Hlakka til komandi tímabils.“
Danski boltinn Landslið karla í fótbolta KSÍ Fótbolti Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Sjá meira