Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir skrifar 27. maí 2026 08:30 Það er með ólíkindum að fylgjast með því hvernig umræðustjórar ESB-aðildarsinna leitast við að ramma inn komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar er forðast að ræða efnislega hvort aðild að Evrópusambandinu sé góð eða slæm hugmynd, eða hvaða upplýsingar liggja fyrir um sambandið eða ferlið sem boðað er að taki við. Þess í stað er umræðunni snúið á haus og látin hverfast um allt annað: hvort fólk vilji „fá að vita“. Við erum sögð standa frammi fyrir einföldu vali — að segja nei og fá ekki að vita, eða segja já og fá að sjá hvað sé í boði. Með þessari framsetningu verður „nei“ ekki lengur efnisleg afstaða, heldur einhvers konar andstaða við upplýsingar. Jafnvel skortur á vilja til að vita. Í stað þess að ræða efnislega hvort aðild sé skynsamleg er andstaðan sífellt oftar rammað inn sem skortur á opnum huga, upplýsingafælni eða jafnvel óábyrg afstaða. Og hver vill vera þar? Þannig færist umræðan frá innihaldi, forsendum og afleiðingum — yfir í það hvort fólk sé opið eða lokað. Hér leyfa þau sem svona tala sér að horfa fram hjá því að aðildarviðræður eru ekki hlutlaus upplýsingasöfnun. Þær eru ferli. Ferli sem hefur eigin kraft, eigin ramma og eigin afleiðingar, jafnvel áður en niðurstaða liggur fyrir. Að fara í viðræður er því ekki bara að „fá að sjá“, heldur að stíga skref inn í ákveðna stefnu sem mótar væntingar, umræðu og stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Varfærni verður tortryggileg. Gagnrýni verður að yfirlæti. Og framsetning á upplýsingum — jafnvel endursögn á eigin orðum forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar — er kölluð útúrsnúningur. Jafnvel áhrifamenn úr stjórnmálum leyfa sér að líkja viðræðum um aðild að ESB við gerð fríverslunarsamnings EFTA. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er því ekki bara hvort við viljum „fá að sjá“, heldur hvað það er nákvæmlega sem við erum að samþykkja þegar við segjum já. Og þar hefur ríkisstjórnin einfaldlega gefið kröfum um skýrar upplýsingar langt nef. Að segja nei er ekki að hafna upplýsingum. Það er ekki að loka augunum. Og það er ekki að þykjast vita betur en aðrir. Að segja nei getur einfaldlega verið sú afstaða að forsendur liggi ekki fyrir til að fara inn í slíkt ferli — að velja að fara ekki af stað, að bíða og krefjast skýrari umræðu áður en lengra er haldið, eða einfaldlega sjá ekki tilganginn þar sem viðkomandi hefur kynnt sér vel hvað aðild að ESB felur í sér og hafnar því aðild sem valkosti. Það er lýðræðisleg afstaða að segja nei — rétt eins og hver önnur. Höfundur er hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar