Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason, Birna Björnsdóttir, Birna Björnsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Hildur Harðardóttir, Kristín Vala Ragnarsdóttir, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, Silja Elvarsdóttir, Svandís Egilsdóttir og Tinna Jóhannsdóttir skrifa 26. maí 2026 13:15 Vestræn samfélög hafa valið sér verga landsframleiðslu (VLF, e. GDP) eða aukningu hennar, hagvöxt, sem mælikvarða á heilbrigði og velgengni samfélaga. Verg landsframleiðsla mælir framleiðslu og neyslu samfélags og aukinn hagvöxtur hefur þótt eftirsótt markmið í sjálfu sér. Hagkerfi: Kerfi sem lýsir því hvernig samfélag framleiðir, dreifir og nýtir verðmæti, vörur og þjónustu Það sem við veljum að mæla hefur bein áhrif á það sem við gerum. Mælikvarðar eru ekki hlutlausir – þeir móta forgangsröðun í stefnumótun, stjórnsýslu og fjárfestingum. Þegar verg landsframleiðsla er ráðandi viðmið verður hún sjálfgefin skilgreining á árangri, jafnvel þótt hún segi lítið um heilsu fólks og félagsleg tengsl, húsnæðisöryggi eða ástand náttúrunnar en helling um vopnaframleiðslu og viðskiptaþvinganir, svo dæmi séu tekin. Það er því í besta falli einföldun – og í versta falli hættulegt – að mæla heilbrigði samfélaga eingöngu með þeim takmarkaða mælikvarða sem verg landsframleiðsla og hagvöxtur er. Velsæld: Ástand þar sem fólk býr við öryggi, heilsu og félagslega vellíðan og því líður vel Við fæðingu leitar hvítvoðungur fyrst alls tengsla við manneskjur í nærumhverfi sínu, jafnvel áður en hann gopar eftir næringu. Flestum uppalendum finnst skipta meira máli að börn upplifi öryggi og eigi vini en þau lesi hraðast eða skori flest mörk. Mörg þekkjum við þá tilfinningu að átta okkur á að fátt er mikilvægara en andleg og líkamleg heilsa. Minnihlutahópar þekkja á eigin skinni óþægindin og jafnvel óttann sem fylgir því þegar samfélagsumræða eða -aðstæður gera ekki ráð fyrir tilvist þeirra eða snýst gegn þeim. Velsældarhagkerfi: Kerfi til þess að verðmæti samfélagsins nýtist til að skapa öllu fólki gott líf Velsældarhagkerfi er hugmyndafræði sem hefur þróast hratt á undanförnum árum og byggir á þeirri sýn að hagkerfið eigi að þjóna fólki og Jörðinni – ekki öfugt. Markmið velsældarhugmyndafræðinnar er að gera hið ósýnilega sýnilegt og þróa viðmið sem styðja ákvarðanir í þágu núlifandi og komandi kynslóða, innan þolmarka Jarðar. Hugmyndin um velsældarhagkerfi fjallar því ekki aðeins um að bæta nýjum mælikvörðum við mælingar okkar á heilbrigði og velgengni samfélagsins, heldur spyr hún okkur líka áleitinna spurninga um hvernig samfélag við viljum skapa og tilheyra? Hver og hvað ákveður hvað telst árangur? Hvaða gildi endurspeglast í ákvörðunum okkar? Og hverjir bera kostnaðinn sem vissulega fellur til, en mælist ekki með hefðbundnum mælikvörðum? Hugmyndafræði velsældarhagkerfis hafnar því að takmarkaðir mælikvarðar á borð við framleiðslu og neyslu segi alla söguna; hún víkkar mælikvarðana út svo þeir nái betur utan um hvernig fólki raunverulega líður, og tekur tengsl okkar við okkur sjálf og fólkið í kringum okkur; heilsu, sjálfbærni og ástand náttúrunnar með í reikninginn í mati á samfélaginu. Við þurfum velsældarhagkerfi Árið 2018 höfðu forsætisráðherrarnir Jacinda Ardern (Nýja Sjáland), Katrín Jakobsdóttir og Nicola Sturgeon (Skotland) forgöngu um stofnun samstarfs ríkisstjórna um velsældarhagkerfi, Wellbeing Economy Governments (WEGo). Þar eru gildi á borð við umhyggju, traust, samheldni, jafnrétti og ábyrgð höfð að leiðarljósi. Hugmyndafræði velsældarhagkerfis hefur á fáum árum þróast úr jaðarumræðu yfir í alþjóðlega stefnumótun og í Wales eru sjónarmið velsældarhugmyndafræðinnar viðurkenndur og formlegur hluti af opinberri ákvarðanatöku. Samhliða hefur alþjóðlega hreyfingin Wellbeing Economy Alliance (WEAll) vaxið hratt og starfar nú í 17 löndum. Eftir fjölmennan fund í Norræna húsinu í lok janúar hefur hópur fólks hist reglulega til undirbúnings stofnunar Íslandsdeildar WEAll. Hópurinn hefur einnig haft samráð við WEAll miðstöðvar í nokkrum löndum, svo sem Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Skotlandi, Írlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Íslenskur vettvangur hreyfingarinnar er nú að verða að veruleika og við hvetjum öll sem hafa áhuga til að mæta á stofnfund Miðstöðvar velsældarhagkerfis á Íslandi (Wellbeing Economy Alliance Hub Iceland) sem fram fer í Norræna húsinu, miðvikudaginn 27. maí kl. 17:00. Fyrir hönd undirbúningshóps um stofnun Miðstöðvar um velsældarhagkerfi, Ásgeir Brynjar Torfason Birna Björnsdóttir Brynhildur Davíðsdóttir Guðmundur Steingrímsson Hildur Harðardóttir Kristín Vala Ragnarsdóttir Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir Silja Elvarsdóttir Svandís Egilsdóttir Tinna Jóhannsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar Skoðun Að þora ekki að ræða við nágranna sína Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Umhverfisvænn söngvari óskast Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir skrifar Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson skrifar Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar Skoðun Þegar þögn laganna verður að banni Bergur Hauksson skrifar Skoðun Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Loftsson skrifar Skoðun Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun ESB fyrir elítuna – eða almenning í landinu? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. skrifar Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson Skoðun
Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen Skoðun
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Skoðun
Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar
Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar
Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson Skoðun
Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen Skoðun
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Skoðun