Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Eiður Þór Árnason skrifar 25. maí 2026 22:14 Sigursteinn Óskarsson segir innbrotið vera mikið áfall. Aðsend - Vísir Brotist var inn í einbýlishús á Kársnesi í Kópavogi um helgina og ýmsum verðmætum stolið. Húsráðendur segja um mikið fjárhagslegt og tilfinningalegt tjón að ræða og eru ekki vongóð um að endurheimta þýfið. Vandað hafi verið til verka og brotamennirnir sneitt hjá öryggiskerfi hússins.
Sigursteinn Óskarsson rafvirkjameistari hefur látið reyna á samtakamátt hverfisins og óskað eftir upplýsingum í Facebook-hópi Kársness. Þar auglýsti hann eftir einstaklingi sem angaði af Dior-ilmvatni og sást bera skartgripi og peningaskáp. Það er meðal þess sem hvarf í innbrotinu en einnig saknar hann vegabréfa og flakkara sem var fullur af gömlum ljósmyndum. „Þetta er eini sénsinn, að einhver hafi tekið eftir einhverju. Af því að þetta var bara lítill peningakassi,“ segir Sigursteinn. Þar hafi mátt finna vegabréfin, reiðufé og gjaldeyrisforða fjölskyldunnar, þar á meðal rússneskar rúblur. Hann segir að innbrotið hafi átt sér stað einhvern tímann eftir klukkan 13 á laugardag. Hjónin höfðu þá yfirgefið hús sitt í Hófgerði og gert sér ferð út á land þar sem þau vörðu hvítasunnuhelginni. Það hafi verið mikið áfall að sjá aðstæðurnar á heimilinu í dag. Ofan á allt saman hafi þjófarnir tekið gluggalistana af til að fjarlægja rúðuna utan á svefnherberginu og tekið listana með sér. „Mér finnst það eiginlega best við þetta.“ Áttað sig vel á því hvað væri verðmætt „Þetta var mjög faglegt. Engin gjafabréf tekin. Hvorki í Kringlunni né Dineout og farið í gegnum allt. Þeir fara bara inn í hjónaherbergi, loka fram á gang og hreinsa allt innan úr hjónaherberginu.“ Með því að fara inn um gluggann á svefnherberginu hafi þeir komist hjá því að setja af stað hreyfiskynjara fram á gangi sem tengdur sé öryggiskerfi hússins. Brotamennirnir hafi farið vel í gegnum skartgripi og skilið verðminni hluti eftir. „Þeir vissu alveg hvað þeir voru að gera.“ Búið sé að tilkynna málið til lögreglu sem hafi verið mjög fljót á staðinn, tekið ljósmyndir og skýrslu. „Alveg til fyrirmyndar þjónustan þar,“ segir Sigursteinn. Hann bætir við að næsta skref verði að eiga við tryggingarnar og það verði verkefni morgundagsins.
Kópavogur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira