Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Eiður Þór Árnason skrifar 25. maí 2026 19:36 Margrét Þórhildur II Danadrottning þann 16. apríl síðastliðinn. Hún er sögð bera sig vel miðað við aðstæður. EPA/IDA MARIE ODGAARD Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn eftir að sneiðmyndataka leiddi í ljós mikla blóðsöfnun á mjaðmasvæði hennar. Um er að ræða afleiðingu falls, að því er fram kemur í tilkynningu frá konungshirðinni. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem Margrét er lögð inn á sjúkrahús.
Gert er ráð fyrir að hún verði á sjúkrahúsi í nokkra daga. Henni líður vel miðað við aðstæður, að sögn konungshallarinnar en danska ríkisútvarpið fjallar um málið. Margrét er lögð inn á sama tíma og aðrir meðlimir konungsfjölskyldunnar taka þátt í Royal Run-hlaupinu sem fer nú fram í Danmörku. Mary drottning, sem hljóp fimm kílómetra á Helsingjaeyri á Sjálandi í dag, sagði eftir hlaupið að Margrét hefði gengist undir minniháttar aðgerð. „Þetta setur auðvitað mark sitt á daginn en þetta er minniháttar aðgerð og hún gekk vel,“ sagði Mary við viðstadda fréttamenn. Friðrik X tók við dönsku krúnunni árið 2024 og varð konungur Danmerkur. Fór nýlega í hjartaþræðingu Innan við vika er liðin frá því að Margrét var útskrifuð af Ríkissjúkrahúsinu eftir sex daga innlögn en hún var lögð inn fyrr í mánuðinum vegna hjartakveisu. Þá var sagt að 86 ára gömul drottningin væri þreytt en við góða heilsu. Margrét undirgekkst hjartaþræðingu til að auka blóðflæði til hjartans og var síðar útskrifuð. Hjartakveisa stafar af kölkun í kransæðum hjartans sem leiðir til þess að ekki berst nægilegt súrefni til hjartans. Hættan á hjartakrampa eykst með aldrinum. Danska ríkisútvarpið segir að Margrét hafi einnig verið lögð inn á sjúkrahús árið 2025. Þá var sagt að hún yrði undir eftirliti „til öryggis“ vegna kvefs. Árið 2024 fór hún svo á Ríkissjúkrahúsið eftir að hafa dottið í Fredensborgarhöll. Árið 2023 gekkst hún undir stóra bakaðgerð og tilkynnti sama ár að hún væri farin að íhuga að stíga til hliðar. Þann 14. janúar 2024 tók Friðrik sonur hennar við sem konungur, alls 52 árum eftir að Margrét tók sjálf við völdum.
Danmörk Kóngafólk Margrét Þórhildur II Danadrottning Tengdar fréttir Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. 8. maí 2025 13:00 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira
Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. 8. maí 2025 13:00