Íslenski boltinn

Haukar ósigraðir á toppnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Haukakonur gátu fagnað í dag.
Haukakonur gátu fagnað í dag. Facebook/Haukar fótbolti

Haukakonur unnu 3-1 sigur á Selfossi að Ásvöllum í Lengjudeild kvenna í fótbolta í dag og eru einar á toppi deildarinnar. Grótta lagði KR.

Sigur Hauka þýðir að liðið er enn með fullt hús stiga, tólf talsins, eftir fyrstu fjórar umferðirnar í deildinni.

KR var jafnt Haukum á toppnum fyrir leiki dagsins en 2-0 sigur Gróttu á KR á Seltjarnarnesi í dag þýðir að KR og Grótta eru jöfn með níu stig í 2.-3. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×