Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar 25. maí 2026 12:01 Elítukenningin, sem C. Wright Mills og G. William Domhoff settu fram á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, gengur út frá því að raunveruleg völd í samfélaginu liggi hjá litlum, auðugum minnihluta. Valdaelítur skipa lykilstöður innan stórfyrirtækja, fjármálastofnana og hagsmunasamtaka atvinnulífsins. Kenningin varpar ljósi á hvernig þessi fámenni hópur nýtir fjármagn sitt til að verja hagsmuni og hafa áhrif á valdhafa. Í baráttunni hér á landi hafa einstakir stórir atvinnurekendur til lands, sjávar og í lofti lýst andstöðu sinni við inngöngu. Hagsmunasamtök þeirra hafa brugðist við sem nokkuð samstæð heild og nýtt áhrif sín til að verja óbreytt ástand og koma í veg fyrir kerfisbreytingar sem m.a. myndu fylgja upptöku evru. Fjölmiðlar í eigu þessara aðila hafa verið nýttir í sama tilgangi. Fræðimaðurinn Jan-Werner Müller hefur bent á að eitt helsta einkenni popúlískra kosningabaráttna sé að forðast að ræða efnisatriði á málefnalegum grunni. Kosningabaráttan hér hefur að töluverðu leyti farið í að þyrla upp ryki, setja fram ásakanir um svikabrigsl og dreifa ótta og rangfærslum sem eru allt þekkt verkfæri samkvæmt Müller. Nýlegt dæmi um þessa nálgun er þegar formaður Heimssýnar kom sér í fréttir til að ræða um hópa innan sinna vébanda sem gætu hugsanlega beitt ofbeldi ef þjóðin samþykkti að fara í aðildarviðræður. Franski heimspekingurinn Jean-Pierre Faye setti fram kenningu um að í stað þess að vera hvor á sínum enda beinnar línu í hinu pólitíska litrófi ættu pólitískar öfgar það til að líkjast hvor annarri og líkti kenningunni við hrossaskeifu. Algengustu tilbrigði þessa samruna birtast oft í mikilli áherslu á þjóðernishyggju, andstöðu við frjálslyndi og trú á einfaldari heimsmynd. Í þessari kosningabaráttu hafa ysta hægrið og rauðasta vinstrið beitt fyrir sér svipuðum rökum gegn aðild: að Ísland gefi fullveldið eftir að stórum hluta, missi auðlindir landsins og muni tilheyra óhagkvæmu myntsvæði. Müller, J.-W. (2016). What is populism? University of Pennsylvania Press. Faye, J.-P. (1972). Théorie du récit: Introduction aux langages totalitaires. Éditions du Seuil. Domhoff, G. W. (1967). Who rules America? Prentice-Hall. Mills, C. W. (1956). The power elite. Oxford University Press. Höfundur er lektor í Háskólanum í Reykjavík og doktor í stefnumótun Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Elítukenningin, sem C. Wright Mills og G. William Domhoff settu fram á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, gengur út frá því að raunveruleg völd í samfélaginu liggi hjá litlum, auðugum minnihluta. Valdaelítur skipa lykilstöður innan stórfyrirtækja, fjármálastofnana og hagsmunasamtaka atvinnulífsins. Kenningin varpar ljósi á hvernig þessi fámenni hópur nýtir fjármagn sitt til að verja hagsmuni og hafa áhrif á valdhafa. Í baráttunni hér á landi hafa einstakir stórir atvinnurekendur til lands, sjávar og í lofti lýst andstöðu sinni við inngöngu. Hagsmunasamtök þeirra hafa brugðist við sem nokkuð samstæð heild og nýtt áhrif sín til að verja óbreytt ástand og koma í veg fyrir kerfisbreytingar sem m.a. myndu fylgja upptöku evru. Fjölmiðlar í eigu þessara aðila hafa verið nýttir í sama tilgangi. Fræðimaðurinn Jan-Werner Müller hefur bent á að eitt helsta einkenni popúlískra kosningabaráttna sé að forðast að ræða efnisatriði á málefnalegum grunni. Kosningabaráttan hér hefur að töluverðu leyti farið í að þyrla upp ryki, setja fram ásakanir um svikabrigsl og dreifa ótta og rangfærslum sem eru allt þekkt verkfæri samkvæmt Müller. Nýlegt dæmi um þessa nálgun er þegar formaður Heimssýnar kom sér í fréttir til að ræða um hópa innan sinna vébanda sem gætu hugsanlega beitt ofbeldi ef þjóðin samþykkti að fara í aðildarviðræður. Franski heimspekingurinn Jean-Pierre Faye setti fram kenningu um að í stað þess að vera hvor á sínum enda beinnar línu í hinu pólitíska litrófi ættu pólitískar öfgar það til að líkjast hvor annarri og líkti kenningunni við hrossaskeifu. Algengustu tilbrigði þessa samruna birtast oft í mikilli áherslu á þjóðernishyggju, andstöðu við frjálslyndi og trú á einfaldari heimsmynd. Í þessari kosningabaráttu hafa ysta hægrið og rauðasta vinstrið beitt fyrir sér svipuðum rökum gegn aðild: að Ísland gefi fullveldið eftir að stórum hluta, missi auðlindir landsins og muni tilheyra óhagkvæmu myntsvæði. Müller, J.-W. (2016). What is populism? University of Pennsylvania Press. Faye, J.-P. (1972). Théorie du récit: Introduction aux langages totalitaires. Éditions du Seuil. Domhoff, G. W. (1967). Who rules America? Prentice-Hall. Mills, C. W. (1956). The power elite. Oxford University Press. Höfundur er lektor í Háskólanum í Reykjavík og doktor í stefnumótun
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar