Fólkið fær að ráða för Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 22. maí 2026 07:01 Þótt skiptar skoðanir séu á því hverju hægt er að ná fram varðandi helstu hagsmuni Íslendinga í viðræðum við Evrópusambandið, væri fráleitt að þjóðin tæki afstöðu til aðildar núna, þegar niðurstöður viðræðna liggja ekki fyrir. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að fram fari tvennar þjóðaratkvæðagreiðslur varðandi Evrópumál. Hin fyrri um hvort hefja eigi viðræður um aðild að sambandinu eigi síðar en árið 2027 og hin síðari um inngöngu þegar samningsniðurstöður liggja fyrir. Hér fjöllum við um hina fyrri, þar sem einungis er kallað eftir afstöðu þjóðarinnar um hvort hefja eigi aðildarviðræður á ný eða ekki. Hér eru hreina upplýsingaöflun að ræða. Það liggur því skýrt fyrir að það er þjóðin sem mun ráða framvindunni. Ef niðurstaða fyrri þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður að viðræður hefjist á ný, þá gera þær það. Ef ekki, gera þær það ekki. Samþykki þjóðin að viðræður hefjist á ný við Evrópusambandið hefjast þær viðræður að öllum líkindum strax í haust. Fram hefur komið að þær muni að minnsta kosti taka eitt og hálft til tvö ár. Að þeim loknum og þegar niðurstaða viðræðna liggur fyrir, boðar ríkisstjórnin að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram og þá um samninginn. Þjóðin hefði lokaorðið. Þingmenn Flokks fólksins fagna þeirri lýðræðisveislu sem þingsályktunartillagan sem hér er til umræðu felur í sér. Við treystum þjóðinni fullkomlega til að taka afstöðu í þessu stóra grundvallarmáli um framtíð þjóðarinnar. Óþarflega mikið uppnám Mér finnst stjórnarandstaðan vera í óþarflega miklu uppnámi yfir þessari atkvæðagreiðslu en vona innilega að stefnan sé ekki tekin á málþóf. Óþarfa tafir á afgreiðslu þessa máls munu koma niður á mörgu og mörgum. Afgreiðsla annarra mála dregst þá á langinn og líkur á að þing fari fram yfir starfsáætlun aukast. Árum saman hefur verið harkalega tekist á um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og hvað gæti falist í aðild. Þessi umræða hefur einkennst af mikilli upplýsingaóreiðu. Hvað sem öllu líður er skynsamlegast og eðlilegast að fólkið í landinu ákveði næstu skref. Stór lýðræðisleg ákvörðun Þetta er stór lýðræðisleg ákvörðun sem við felum þjóðinni með þessari þingsályktun. Ég hvet alla háttvirta þingmenn að þvæla ekki umræðuna með þeirri röngu fullyrðingu að viðræður feli í sér aðild okkar að sambandinu. Hér þarf að greina á milli í stað þess að afvegaleiða fólkið í landinu. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Flokkur fólksins Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar