Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar 21. maí 2026 15:02 Nú er rétt rúmlega eitt ár frá því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum. Á þeim tíma hefur verið ráðist í hagræðingu, halli ríkissjóðs hefur verið helmingaður, skuldir hafa lækkað, traust erlendra matsaðila á ríkissjóði hefur aukist og lögð hefur verið fram fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir hallalausum fjárlögum út kjörtímabilið. Þetta skiptir máli, því við vitum að sterk staða ríkissjóðs er undirstaða velferðar á Íslandi og getu þjóðarinnar til að takast á við áföll. Afleiðingarnar af efnahagsstjórn síðustu ára og þeim séríslensku vandamálum sem fylgja verðtryggingu á Íslandi eru þó enn sýnilegar. Í morgun birti Viska greiningu sem sýndi að Ísland er orðið dýrasta land heims og verðlag hér er orðið 84 prósentum hærra en að meðaltali í Evrópu. Dýrtíð hefur verið kerfislægur vandi hér á landi áratugum saman. Innflutt verðbólga Nú glímir efnahagskerfi heimsins í heild við áskoranir vegna lokunar Hormússunds og skerts framboðs á olíu með tilheyrandi hækkun á olíuverði. Ríkisstjórnin brást hratt og örugglega við þessari stöðu með lækkun virðisaukaskatts á bensíni tímabundið til að milda höggið en samkvæmt greiningu Seðlabankans er hækkun olíuverðs þrátt fyrir það ein helsta ástæða verðbólgu á Íslandi. Til að tryggja að þessi lækkun myndi skila sér þangað sem hún átti að fara, í vasa landsmanna, var ákveðið að veita heimildir til eftirlits og aðgerða. Það var ekki að ástæðulausu þar sem sterkar vísbendingar voru til staðar um að olíufélög skiluðu lækkunum ekki til neytenda á nándar sama hraða og þau skiluðu hækkunum. Þessu fyrirkomulagi mótmælti stjórnarandstaðan hástöfum en árangurinn er sá að aðgerðin heppnaðist eins og til var ætlast. Létt var undir með almenningi og áhrifin á verðbólgu verða jákvæð. Þrjú högg á þjóð Við miklar verðhækkanir á olíu og viðvarandi háa verðbólgu fá íslensk heimili ekki bara eitt högg heldur þrjú vegna okkar verðtryggða krónuhagkerfis. Fyrsta höggið er þegar eldsneytið hækkar og dýrara verður að fylla tankinn. Annað höggið er þegar hækkað verð mælist í vísitölunni sem hækkar verðtryggð lán heimilanna. Þriðja höggið dynur svo á heimilunum þegar Seðlabankinn hækkar stýrivexti til að sporna gegn frekari verðbólgu. Þetta er hin þrefalda svipa verðtryggðrar krónu á Íslandi. Átök breiðast út í Miðausturlöndum og íslenskum almenningi er refsað með þremur svipuhöggum. Það er kominn tími á að við skoðum allar leiðir til að draga úr áhrifum verðtryggingar krónunnar á íslensk heimili. Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ari Sigurjónsson Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar