Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. maí 2026 12:07 Gunnar Þorvarðarson, sonur hans Logi Gunnarsson og dóttir hans, Sara Björk Logadóttir, hafa samanlagt unnið tíu Íslandsmeistaratitla. Sara vann sinn fyrsta á sunnudaginn. Vísir/Bjarni Þriðji ættliðurinn í Njarðvík varð Íslandsmeistari í fyrrakvöld. Sara Björk Logadóttir fylgdi þar í fótspor föður síns Loga Gunnarssonar og afa Gunnars Þorvarðarsonar sem einnig urðu Íslandsmeistarar með Njarðvík.
Njarðvík varð Íslandsmeistari kvenna í körfubolta á sunnudagskvöldið var eftir sigur á Haukum í IceMar-höllinni í Reykjanesbæ. Í liði Njarðvíkur er hin 18 ára gamla Sara Björk Logadóttir sem varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Faðir hennar og afi fylgdust með úr stúkunni. „Þetta var ótrúlega gaman. Þetta er ólýsanleg tilfinning einhvern veginn,“ segir Sara sem þurfti að fara í stærðfræðipróf daginn eftir titilfögnuðinn og kláraði þar með prófatörnina í FS. Gleðin var ósvikin á sunnudagskvöldið var þegar Íslandsmeistaratitillinn fór á loft. Njarðvík vann Hauka í úrslitaeinvíginu eftir að hafa tapað fyrir Haukum og hlotið silfur í fyrra.Vísir/Hulda Margrét „Þetta var svolítið meira stress en ég hélt að vera pabbi uppi í stúku. Það var smá svona pabbastress,“ segir faðir Söru, Logi Gunnarsson, sem varð Íslandsmeistari með Njarðvík um aldamótin. Umrætt pabbastress er eitthvað sem faðir Loga, Gunnar Þorvarðarson, margfaldur Íslandsmeistari með Njarðvík á níunda áratugnum, þekkir vel. „Já, já. Ég var með það þegar Logi var að spila. Það fylgdi manni alltaf,“ segir Gunnar léttur. Sagan skrifuð Gunnar var spilandi þjálfari Njarðvíkur þegar liðið varð Íslandsmeistari 1984 og 1985. Hann hafði unnið fyrstu titla í sögu félagsins sem leikmaður 1981 og 1982.Tímarit.is/Morgunblaðið 30.3.1985 Gunnar hóf sigurgönguna og var hluti af liði Njarðvíkur sem vann fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögu félagsins árið 1981. Hann fylgdi því eftir með fjórum titlum til, árin 1982, 1984 og 1985. Þá var hann aðstoðarþjálfari liðsins sem varð meistari árið 2006. Það var löng leið að fyrsta titlinum sem hóf mikla sigurgöngu Njarðvíkinga. „Við runnum alltaf á rassinn síðustu metrana þar til við náðum í fyrsta titil félagsins 1981. Það var ógleymanlegt,“ segir Gunnar. Svipaða sögu má segja af syni hans og sonardóttur. Logi fór upp alla yngri flokkana án Íslandsmeistaratitils og Sara líka. Það var því þrautaganga að fyrsta titlinum hjá þeim báðum. Koma að ráðum hér og þar 45 árum síðar er þriðji ættliðurinn úr fjölskyldunni orðinn Íslandsmeistari. En hvernig finnst Söru körfuboltapabbinn Logi? Fjölskyldan „horfir á Rússann“, líkt og hefð er fyrir í ættinni.Vísir/Bjarni „Hann er bara geggjaður sko. Hann gefur mér alltaf ráð fyrir leiki. Það er gott að hafa hann,“ segir Sara. Faðir hennar segist fara varlega í sakirnar. „Maður passar sig að gera ekki of mikið og skipta sér ekki of mikið af. Maður þarf að fara varlega að þessu og pota inn ráðum hér og þar,“ segir Logi. Það var svipað hjá Gunnari gagnvart Loga. „Já, ég gerði það á sínum tíma. En ég er reyndar ekki mikið að böggast í Söru. En svona eitt og eitt atriði sem ég skýt að henni. En ég læt pabbann bara um það,“ segir Gunnar. Ekki sjálfgefið Logi vann á sínum tíma þrjá Íslandsmeistaratitla, árin 1998, 2001 og 2002. Hann segist hafa verið að eltast við að ná sex titlum líkt og faðir hans. Logi varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1998 með Njarðvíkurliðinu.Mynd/Njarðvík „Ég sagði það við Söru eftir leikinn, að ég fór þarna þrjú ár í röð, fyrstu þrjú árin mín og mér fannst þetta svo eðlilegt og taldi það eðlilegan hlut að fara í lokaúrslit og vinna þau,“ segir Logi sem fór í kjölfarið utan í atvinnumennsku áður en hann sneri heim til Njarðvíkur árið 2013 og spilaði til ársins 2023. Titillinn sem hann vann 21 árs gamall árið 2002 reyndist hins vegar hans síðasti. „Ég fór aldrei aftur í lokaúrslitin og hef ekkert unnið síðan þá. Maður á þess vegna að njóta þess og ég sagði það við hana, maður veit aldrei hvenær þetta kemur aftur. Ég var að elta hann en náði honum ekki,“ segir Logi. Sara Logadóttir og Logi Gunnarsson, faðir hennar, í fögnuðinum á sunnudagskvöldið var.Vísir/Hulda Margrét Þarf Sara þá ekki að stefna að því, að gera það sem föður hennar tókst ekki? „Jú, er það ekki bara planið?“ segir Sara og hlær. Logi grípur orðið: „Við getum lagt titlana saman, við erum komin með fjóra og eigum bara tvo eftir til að jafna hann.“ „Ég hvíslaði því nú að henni þegar ég var að faðma hana: Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér,“ segir Gunnar. Innslagið úr Sportpakka gærkvöldsins má sjá í spilaranum efst.
UMF Njarðvík Reykjanesbær Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Sjá meira