Greiðvikni kom í bakið á fjórum Árni Sæberg skrifar 20. maí 2026 15:40 Höfuðpaurinn í málinu hlaut þyngstan dóm. Vísir/Vilhelm Fjórir karlmenn, tveir Króatar, Pólverji og Íslendingur, hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Annar Króatinn, Antonio Kastellana, hlaut þyngstan dóm, þriggja ára fangelsi. Mennirnir sögðust einfaldlega hafa verið að gera félögum sínum greiða þegar þeir frömdu brotin.
Dómur yfir mönnunum fjórum var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 15:30. Antonio hlaut þriggja ára dóm, annar Króati hlaut átta mánaða fangelsisvist, skilorðsbundna til tveggja ára, Pólverji hlaut sömu refsingu og Íslendingur hlaut tíu mánaða fangelsi, einnig skilorðsbundið til tveggja ára. Vísir fjallaði ítarlega um aðalmeðferð málsins sem fór fram um miðjan síðasta mánuð: Þar kom meðal annars fram að sá sem hlaut þyngstan dóm sagðist hafa þénað 22 milljónir króna í gegnum öryggisgæslu og ferðaþjónustu, en ekki sölu fíkniefna. Hann kvaðst ekkert kannast við mikið magn fíkniefna, sem fannst heima hjá honum, en hann hefði leyft öðrum að geyma þau heima hjá honum. Héldu að verið væri að flytja inn heilsumorgunkorn Þá sögðu hinn Króatinn og Pólverjinn að þeir hefði einfaldlega verið að gera vini sínum, Antonio, greiða með því að hjálpa honum að flytja kassa á milli staða í tengslum við innflutning á sykurlausu morgunkorni. Kassarnir reyndust innihalda talsvert magn fíkniefna. Tók við sófa fullum af fíkniefnum Fjórði maðurinn, eini Íslendingurinn í hópnum, var ákærður ásamt Króötunum tveimur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa á tímabilinu 18. júní til 4. júlí 2025 haft í vörslum sínum og staðið að innflutningi á 11,2 kílógrömmum af maríjúana ætluð til sölu- og dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Samkvæmt ákæru voru efnin falin í sófa sem kom til Íslands með póstsendingu frá Bandaríkjunum þann 18. júní 2025. Íslendingurinn er sagður hafa tekið við sendingunni og geymt efnin þar til hinir tveir fóru með sófann og fíkniefnin í geymslu að Selhellu þar sem lögregla lagði síðar hald á efnin. Allir fjórir mennirnir voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi með því að hafa í félagi við óþekktan aðila sammælst um að fremja refsiverðan verknað um nokkurt skeið til og með 4. júlí 2025. Framkvæmd brotanna var sögð hafa verið liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka.
Fíkniefnabrot Dómsmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira