Innlent

Enn varað við umferðartöfum sökum fram­kvæmda á Hring­vegi

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Vegkaflinn sem um ræðir er hægra megin á myndinni. 
Vegkaflinn sem um ræðir er hægra megin á myndinni.  Vísir/Vilhelm

Vegagerðin varar við því að í dag frá klukkan níu og fram til klukkan átta í kvöld verður unnið að vegaframkvæmdum á um 900 metra kafla á Hringveginum austan við hringtorgið í Hveragerði.

Umferðastýring verður á svæðinu og eru vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar. Miklar tafir urður á umferðinni á leiðinni frá Reykjavík til Hveragerðis í gær vegna framkvæmda á veginum við Hólmsá.

Þar mynduðust langar bílaraðir sitt hvoru megin við framkvæmdasvæðið þar sem unnið var að malbikun og fræsingu og voru sumir vegfarandur ekki sáttir við verklagið sem viðhaft var. 

Að auki bendir Vegagerðin á að mikið sé um holuviðgerðir og því vinnuflokkar að störfum á vegum. „Vinsamlegast virðið merkingar og akið með gát,“ segir í færslu á vefnum umferðin.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×