Fjölbreytt skólastarf í litlum skóla Guðmundur FInnbogason skrifar 18. maí 2026 11:32 Nú þegar stutt er í annan enda skólaásins er venjan að líta um öxl og rifja upp það sem áorkast hefur í vetur. Stundum er gert lítið úr fámennum skólum utan höfuðborgarsvæðisins og fólk ímyndar sér að vegna smæðarinnar sé erfitt að halda úti gæða skólastarfi. Það er auðvitað ekki rétt því að þessir skólar hafa oftar en ekki meira tækifæri en þeir stærri til að stunda gæðastarf, fara út fyrir boxið og einstaklingsmiða námið. Sérstaklega þegar samfélagið tekur vel utan um starfsemi þeirra. Undirritaður er svo heppinn að vinna í einum slíkan skóla í Uppsveitum Árnessýslu og vera í samstarfi við enn fleiri slíka skóla á svæðinu og hef séð með eigin augum hvað hægt er að gera. Við Þjórsárskóla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, fer fram metnaðarfullt og magnað skólastarf. Eftirfarandi er bara örlítið af því sem öflugt lið kennarar og nemenda hefur fengist við í vetur. Skólaárið hófst á útilegu þar sem að allur skólinn, kennarar og nemendur, fóru inn í Þjórsárdal og gistu í tjöldum. Svona ferðir kenna þrautseigju sem að hjálpa nemendum að takast á við krefjandi verkefni innan og utan skólastofunnar ásamt því að vera einn besti vettvangurinn til að læra um náttúruna. Nemendur í 9. bekk skólans er að undirbúa námsferð til Berlínar næsta haust en sú vinna hefur verið mjög fræðandi fyrir þau og verður svo ljóslifandi þegar allur undirbúningurinn og námið nær hápunkti í borginni sjálfri. Útinám hefur verið stór hluti af starfi skólans í mörg ár og þessi vetur er engin undantekning. Nemendur hafa notið þess að vera í námi útivið í hverri viku allan veturinn. Samkennsla árganga er frábært tæki til að efla nemendur, stækka vinahópinn og stuðlar að öflugu einstaklingsmiðuðu námi. Lestrarkennsla hefur skipað stóran sess í öllu starfi skólans á öllum stigum bæði í gegnum allt skólastarfið og með fjölbrettum og skemmtilegum lestrarátökum, og verkefnum. Nemendur úr leikskólanum Leikholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa komið vikulega í heimsókn eftir áramótin. Í þessum heimsóknum fá þau að taka þátt í skólastarfinu, fá að kynnast kennurunum og nemendunum og koma því tilbúin til leiks í haust. Meðal verkefna í náttúrufræði eru tilraunavikur þar sem nemendur finna og gera tilraunir af ýmsum toga og taka þær upp á myndbönd til að sýna foreldrum og hvort öðru. List og verkgreinum er gert hátt undir höfði. Í þeim tímum hafa nemendur á unglingastigi t.d. smíðað sínar eigin fjallferðarskrínur sem að eiga eftir að fylgja þeim upp á hálendið næstu árin. Greinarnar hafa fengið aukið rými í nýju list og verkgreinahúsi sem var tekið í notkun í vetur. Þar hefur heimilisfræðin, myndmennt og textílmennt blómstrað með fjölbreyttum og spennandi verkefnum. Stoðþjónusta í litlum skólum skiptir máli og þar hjálpar smæðin oft til þannig að öll fá stuðninginn sem þau þurfa þegar þau þurfa hann og það hefur svo sannarlega verið raunin hjá okkur. Miðstigið fór í skálaferð í vetur þar sem þau gistu og unglingastigið endar veturinn á skálaferð í skálann Klett sem staðsettur er inn á afrétti Flóa og Skeiða. Árleg sundkeppni fór fram í frábæru veðri í vikunni. Þar bauðst nemendum á miðstigi að taka þátt og keppa um farandbikar og bætingarverðlaun og nemendur á yngsta stigi komu og hvöttu keppendur áfram og fengu í leiðinni að fylgjast með frábærum fyrirmyndum, svo var ekki leiðinlegt að henda skólastjóranum og kennurunum í laugina. Næsta haust tökum við svo í gagnið fullbúið íþróttahús af stærstu gerð sem mun breyta íþróttakennslunni til framtíðar. Þetta er auðvitað langt því frá tæmandi listi yfir allt það sem litlir skólar gera og geta gert og dregur ekkert úr öllu því frábæra námi sem fer fram í öllum greinum í skólanum. En þegar við erum á fullu að tala niður skólakerfið okkar þá má ekki gleyma því að það er bæði fjölbreytt og magnað og þar fer fram starf sem skiptir öllu máli fyrir unga fólkið okkar og fyrir samfélögin sama af hvaða stærð þau eru. Gleðilegt sumar Höfundur er skólastjóri Þjórsárskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grunnskólar Skeiða- og Gnúpverjahreppur Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Sjá meira