Elías bikarmeistari í Danmörku Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 17:09 Elías Rafn átti mikilvægar vörslur í úrslitaleiknum. Nick Potts/PA Images via Getty Images Elías Rafn Ólafsson varð bikarmeistari í Danmörku eftir 1-0 sigur í úrslitaleiknum gegn FC Kaupmannahöfn, liði Viktors Bjarka Daðasonar. Hetja Midtjylland í mjög lokuðum leik kom frá Suður-Kóreu.
Mikið var undir hjá báðum liðum í þessum leik. FCK átti algjört vonbrigðatímabil í deildinni og Midtjylland missti deildarmeistaratitilinn til AGF um síðustu helgi. Það sást líka á stuðningsmönnum liðanna hversu mikilvægur þessi bikarúrslitaleikur var og stemningin var hreint sturluð, stundum aðeins of. Elías varði frá Viktori Með svo mikið undir varð leikurinn hins vegar mjög lokaður. Fá færi litu dagsins ljós og staðan stóð markalaus í hálfleik eftir mörg stopp vegna brota. Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK og náði taka fínt skot á Elías Rafn Ólafsson í marki Midtjylland undir blálok fyrri hálfleiks. Elías varði vel og varði einnig frá Mohamed Elyounoussi í sömu sókn. Töf vegna flugelda Seinni hálfleikurinn tafðist síðan um stund því stuðningsmenn FCK kveiktu í flugeldum og beindu þeim að leikmönnum þegar þeir gengu út úr göngunum. Dómarinn var fljótur að senda leikmenn aftur inn í búningsherbergi og beðið var eftir því að lætin róuðust niður áður en leikurinn hófst á ný. View this post on Instagram Mikil harka Þegar líða tók á leikinn færðist meiri harka í menn, leikmenn beggja liða fengu spjald og þjálfari FCK fékk líka að líta gult spjald fyrir mótmæli. Hann vildi meina að brotið hefði verið á Viktori Bjarka en fékk ekkert fyrir sinn snúð. Viktor Bjarki fékk frábært færi til að taka forystuna fyrir FCK um miðjan seinni hálfleik en varnarmaður kastaði sér fyrir skotið á ögurstundu. Hann var síðan tekinn af velli á 77. mínútu þegar staðan var enn markalaus og allt leit úr fyrir framlengingu. Viktor Bjarki náði ekki að nýta færin sem hann fékk. Kristian Tuxen Ladegaard Berg/NurPhoto via Getty Images Hetjan frá Suður-Kóreu Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Suður-Kóreumaðurinn Han-Beom Lee sigurmarkið fyrir Midtjylland. Aral Simsir átti samt mestan heiður í markinu, með stórkostlegri fyrirgjöf sem rataði til Lee. Samlandi hans, Gue-Sung Cho, var síðan næstum því búinn að skora annað mark fyrir Midtjylland í uppbótartímanum. FCK var þá komið með nánast allt liðið í sókn en Midtjylland braust upp í skyndisókn. Suður-Kóreumaðurinn sigraði markmanninn en boltanum var bjargað á línu. Lee skoraði seint og það reyndist sigurmark leiksins. midtjylland Elías Rafn greip síðan fyrirgjöf úr síðustu sókn FCK og Midtjylland fagnaði titlinum í þriðja sinn í sögu félagsins. Rúnar Alex Rúnarsson var á varamannabekk FCK og kom ekki við sögu í leiknum.
Danski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira