Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar 13. maí 2026 06:32 Hvergi á Íslandi eru barnafjölskyldur rukkaðar eins heiftarlega fyrir leikskólaþjónustu og í Kópavogi. Það eru sláandi reynslusögur frá foreldrum af barnaskattinum í Kópavogsmódelinu. Einstæð móðir í Kópavogi lýsir því að þurfa að borga tæplega 60 þúsund krónur á mánuði fyrir 8 klukkustunda vistun fyrir eitt barn og kveðst ekki hafa tök á að vinna minna. Allir dagar séu púsl og streita, þó hún sé ánægð með leikskólann. Henni reiknast til að hún muni borga vel yfir milljón meira fyrir leikskólagöngu barnsins en ef hún byggi til dæmis í Reykjavík. Þetta er ekki einsdæmi. Fjölskylda með tvö leikskólabörn þarf að greiða milljón krónur* á ári fyrir 40 tíma leikskólaviku, eða um tvöfalt meira** en sama fjölskylda þyrfti að greiða í Reykjavík. Það er uppgjöf en ekki lausn að rukka tveggja barna fjölskyldu um milljón fyrir grunnþjónustu eins og leikskólavist. Uppsafnað geta þetta orðið um 5 milljónir sem tveggja barna fjölskylda þarf að greiða fyrir leikskólagönguna í Kópavogi, og þannig slagað hátt í sem nemur útborgun fyrir smærri íbúð. Í ofanálag hækka gjöldin fjórum sinnum á ári miðað við launavísitölu, þ.e. umfram verðlag. Þetta tikkar verulega í heimilisbókhaldið. Kannski er það þess vegna sem 24-35 ára fólki fækkar í Kópavogi skv. tölum Hagstofunnar. Samfylkingin hafnar þessari gjaldapólitík sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn komu á í Kópavogi. Í velferðarþjóðfélagi á grunnþjónusta að vera veitt á viðráðanlegu verði og standa öllum til boða. Þess vegna talar Samfylkingin í Kópavogi fyrir þaki á leikskólagjöld og 100% systkinaafslætti þannig að engin fjölskylda þurfi að greiða meira en 50 þúsund á mánuði fyrir leikskólavist, óháð fjölda barna. Í dag kostar full vistun fyrir eitt barn í Kópavogi 57.517 kr. á mánuði. Til lengri tíma verðum við að gera leikskóla að lögbundnu og fjármögnuðu verkefni sveitarfélaga eins og tíðkast á hinum Norðurlöndunum og lagt er til í skýrslu aðgerðahóps forsætisráðuneytisins um brúun umönnunarbilsins. Þannig hefjum við leikskólann á þann stall sem hann á skilið sem fyrsta skólastigið á Íslandi og sýnum leikskólakennurum viðeigandi virðingu. Þannig tökum við ábyrgð hvort á öðru, því barnaskatturinn í Kópavogi leggst of þungt á þá sem ekki mega við honum og komast ekki undan, á meðan fjölskyldur með sterkt viðbótarbakland og sveigjanlega vinnutíma bera minnstu byrðarnar. Þetta er hægt með sameiginlegu átaki sveitarfélaga og ríkis. Þannig tryggjum við varanlega betri starfsaðstæður fyrir leikskólakennara, sem Samfylkingin styður svo sannarlega. Hættum að etja foreldrum og leikskólakennurum gegn hvoru öðru og hverfum frá plástrum sem leggja óhóflega byrðar á heimilin. Því lausn sem er á kostnað heimilanna og starfsþátttöku kvenna, er ekki varanleg lausn. Einföldum frekar líf barnafjölskyldna með því að létta álögur og taka betur utan um leikskólastigið með samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Veski barnafjölskyldna í Kópavogi á ekki að léttast um hálfri milljón meira á ári en fjölskyldna í næsta sveitarfélagi. Gerum betur. Höfundur er móðir í Kópavogsbæ og aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. * Með gjaldskrárhækkun Kópavogsbæjar 1. maí 2026: 57.517x2x11 = 1.265.374 kr. ** 33.290×2×11 =732.380 fyrir sambúðarfólk með tekjur yfir 18 milljónir á ári, en 26.090×2×11 = 573.980 fyrir einstætt foreldri með yfir 13 milljónir í tekjur á ári Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Jóna Þórey Pétursdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar