„Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ Smári Jökull Jónsson skrifar 12. maí 2026 16:31 Stemmningin í Grindavík var frábær á síðasta leik og verður eflaust ekki síðri í Síkinu í kvöld. Vísir/Guðmundur Leikir Tindastóls í úrslitakeppni Bónus-deildar karla í körfubolta taka yfir allt lífið á Sauðárkróki á leikdegi segir formaður körfuknattleiksdeildar félagsins. Hann segir mikla tilhlökkun fyrir leik kvöldsins gegn Grindavíkur og fánar félagsins séu við hún víða um bæinn.
Í kvöld fer annar leikur Grindavíkur og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus-deildar karla í körfuknattleik fram á Sauðárkróki. Grindavík vann 85-80 sigur í fyrsta leiknum á heimavelli en þrjá sigra þarf til að hampa Íslandsmeistaratitlinum. Tindastóll hefur náð góðum árangri í efstu deild körfuboltans á síðustu árum en liðið vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 2023 og hefur farið alla leið í úrslitaeinvígið þrjú tímabil af síðustu fjórum. Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, segir tilhlökkunina mikla á Sauðárkróki fyrir leik kvöldsins. „Stemmningin er bara frábær eins og alltaf í úrslitakeppninni hjá okkur. Það er tilhlökkun og spenna að takast á við Grindvíkingana sem eru með frábært lið og frábæra stuðningsmenn,“ sagði Dagur í samtali við fréttastofu nú síðdegis. „Menn eru að hætta fyrr í vinnunni“ Oft hefur verið rætt og ritað um stemmninguna á Króknum í úrslitakeppninni og segir Dagur leiki Tindastóls taka yfir lífið í bænum á leikdegi. „Menn eru að hætta fyrr í vinnunni og allir spenntir að komast og horfa á leikinn. Það eru fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta,“ en að hans sögn verða um 1400 áhorfendur á leiknum og að sjálfsögðu uppselt. Leikurinn hefst 19:15 og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland þar sem upphitun hefst 18:30. „Þetta hefur verið vel heppnað hjá okkur“ Dagur býst við frábærri stemmningu. „Fólk er að mæta þarna upp úr hálf fimm og fá sér hamborgara. Við erum með trúbador hérna úti og síðan opnar húsið korter yfir sex og þá fyllist húsið. Það hefur verið svaka stemmning, sérstaklega ef það er gott veður. Það er hiti núna þannig að það verður fjör í kvöld, þetta hefur verið vel heppnað hjá okkur.“ Búast má við að Grindvíkingar fjölmenni norður á leikinn. „Þetta verður algjör veisla og frábærar stuðningssveitir báðar tvær. Það er gaman að bera sig við Grindavík í úrslitunum, þetta verður skemmtun fyrir alla,“ sagði Dagur Þór að lokum áður en hann rauk í að undirbúa fyrir leikinn. Leikur Tindastóls og Grindavíkur verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland frá 18:30.
Bónus-deild karla Tindastóll Grindavík Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira