Viðsnúningur til hins verra í rekstri Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu Friðrik Sigurbjörnsson og Alda Pálsdóttir skrifa 12. maí 2026 17:01 Ársreikningur Hveragerðisbæjar fyrir árið 2025 var nýverið lagður fram á fundi bæjarstjórnar. Í bókun vegna þessa hreykir meirihluti Framsóknar og Okkar Hveragerðis sér af því að reksturinn hafi skilað rúmlega 100 milljóna króna afgangi. Við fyrstu sýn hljómar það ágætlega. En staðreyndin er hins vegar allt önnur. Raunverulegur hagnaður bæjarins er nefnilega ekki rúmlega 100 milljónir króna, heldur um 25 milljónir króna. Þetta sést þegar að hagnaður af samstarfsverkefnum sunnlenskra sveitarfélaga, þar sem hlutur Hveragerðisbæjar er rúmar 75 milljónir króna, er dreginn frá. Sá hagnaður verður eftir hjá samstarfsverkefnunum og er ekki hluti af raunverulegum rekstri Hveragerðisbæjar, þó hann sé talinn fram í samstæðu sveitarfélagsins eins of skylt varð að gera eftir 2021. Það er því ljóst að sá afgangur sem meirihlutinn vísar til gefur ekki rétta mynd af rekstri bæjarins. Ef horft er síðan á fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2025 þá var gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A og B hluta yrði jákvæð um rúmar 177 milljónir króna. Niðurstaða ársreikningsins er því 152 milljónum krónum lakari en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Athyglisvert er síðan að sjá að veltufé frá rekstri A og B hluta er 478 milljónir króna á meðan að næsta árs afborganir langtímaskulda eru 560 milljónir króna og eru þá ótaldar afborganir vegna leiguskuldarinnar sem nema rúmum 40 milljónum króna. Í flestra augum er þessi staðreynd merki um að reksturinn er á hættulegri braut. Skuldir halda áfram að hækka Á sama tíma og reksturinn stendur varla undir sér halda skuldir áfram að vaxa hratt. Skuldir bæjarins eru nú komnar í um 9,6 milljarða króna. Til samanburðar voru þær í upphafi kjörtímabilsins rúmir 5 milljarðar. Þetta er gríðarleg hækkun á stuttum tíma og ekki furða að fólk spyrji sig, í hvaða verkefni fóru þessir peningar? Því ekki hefur uppbygging innviða í Hveragerði verið í takt við þessa auknu lántöku. Sú þróun sem hefur orðið á kjörtímabilinu í skuldasöfnun dregur þannig úr svigrúmi bæjarins til þess að byggja upp til framtíðar. Meiri skuldir þýða hærri vaxtagreiðslur og minni möguleika til að bregðast við ef eitthvað óvænt kemur upp eða byggja upp án þess að þurfa að taka lán fyrir framkvæmdum. Óskalandsleigusamningurinn Eitt dæmi um þá óráðsíu í rekstrinum sem einkennt hefur ákvarðanir meirihlutans er viðbyggingin við Leikskólann Óskaland. Þar var farin sú leið að gera langtímaleigusamning um bygginguna í stað þess að fjármagna framkvæmdina með hefðbundnum hætti. Þessi leiguskuldbinding, upp á yfir milljarð króna, er ekkert annað en lán sem bæjarfélagið þarf að greiða á næstu 40 árum. Munurinn er sá að þetta er kallað leiga í stað láns og í lok samningstímans mun sveitarfélagið hafa greitt miklu meira en byggingakostnað í leigu fyrir þessa viðbyggingu án þess að eiga í henni nokkurn einasta fermetra. . Staðan á síðasta kjörtímabili Það er athyglisvert að sjá hvernig núverandi meirihluti kýs að setja fram sögu reksturs Hveragerðisbæjar á síðasta kjörtímabili. Þar er fullyrt að árin 2018–2022 hafi einkennst af tapi og að nú hafi orðið „viðsnúningur“. Sú framsetning er bæði einfölduð og villandi. Árið 2019 var rekstur bæjarins jákvæður og því rangt sem meirihlutinn hefur haldið fram að tap hafi verið samfellt frá þeim tíma. Þá hlýtur að vera rétt og eðlilegt að benda á að tapárin 2020 og 2021 skýrast að stórum hluta af aðstæðum sem þáverandi bæjarstjórn hafði ekki stjórn á, ekki frekar en önnur sveitarfélög og fyrirtæki á landinu sem öll glímdu við afleiðingar heimfaraldurs með tilheyrandi afleiðingum fyrir afkomu og rekstrarniðurstöðu. Eða hafa framsóknarmenn og fulltrúar okkar Hveragerði gleymt því að heimsfaraldur Covid-19 hafði veruleg áhrif á tekjur og útgjöld og á sama tíma hækkaði verðbólga langt umfram áætlanir? Þá hafði einnig mikil áhrif einskiptisfærsla á lífeyrisskuldbindingum upp á um 131 milljón króna, sem var bókhaldsleg breyting en ekki hefðbundinn rekstrarkostnaður. Að taka þessi tvö óvenjulegu ár og nota þau sem mælikvarða á heilt kjörtímabil gefur því ekki rétta mynd, fulltrúar meirihlutans sem á síðasta kjörtímabili sátu í minnihluta ættu að vera vel meðvituð um þetta Þurfum að staldra við Uppbygging þjónustu bæjarfélags í vexti er ánægjuleg og nauðsynleg. En það verður að gera það með skynsamlegum hætti. Þegar reksturinn skilar nánast engum afgangi, uppbygging innviða er takmörkuð en skuldir halda áfram að vaxa þá er eitthvað ekki að ganga upp. Það verður að fara varlega, forgangsraða betur og tryggja að rekstur bæjarins standi undir þeirri uppbyggingu sem ráðist er í. Verkefni þeirra sem taka við á nýju kjörtímabili verður því stórt og vandasamt, en það er ljóst að taka þarf til í rekstri bæjarins eftir meirihluta Framsóknar og Okkar Hveragerðis á þessu kjörtímabili. Friðrik Sigurbjörnsson, oddviti D-listans í Hveragerði.Alda Pálsdóttir, bæjarfulltrúi D-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 15.08.2026 Halldór Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun Skoðun Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar Sjá meira
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun