„Sýnir hvað við getum gert í þessari deild“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 11. maí 2026 21:55 Natasha Anasi Erlingsson Guðmundur/Vísir Grindavík/Njarðvík sótti gríðarlega öflugan 1-2 sigur á Avis vellinum í Laugardalnum þegar þær heimsóttu Þrótt í 4. umferð Bestu deild kvenna í kvöld. Natasha Anasi Erlingsson fyrirliði Grindavík/Njarðvík ræddi við Vísi eftir leik. „
Þetta var leikur tveggja kafla og þar spilaði vindurinn aðeins í leiknum“ sagði Natasha Anasi Erlingsson leikmaður Grindavík/Njarðvík en hún var fyrirliði liðsins í kvöld. „Í fyrri hálfleik náðum við að pressa eins og við vildum gera en aðeins meira að þrauka í seinni hálfleik og reyna að gera okkar besta á móti vindi en samt náðum við að setja boltann niður og reyna að spila út“ „Vindurinn gerði aðstæðurnar aðeins erfiðari en ég held að við náðum að eiga vel við það í dag“ Grindavík/Njarðvík sótti mikið í fyrri hálfleik og hótaði markinu oft áður en það loksins kom. „Þetta var mjög sætt að sjá boltann fara inn og mér fannst eins og við værum með fleiri sénsa sem áttu að fara inn en þá fór það í stöngina þrisvar og ég átti líka séns þarna sem endaði í hliðarnetinu“ „Þetta var mjög sætt að sjá þetta og svo líka með Rakel þarna lengst í fjærhorninu, þetta var bara geggjað“ Rakel Sigurðardóttir skoraði annað mark gestana stuttu eftir fyrsta markið með frábæru skoti utan af kannti og gestirnir leiddu með tveim inn í hálfleik. „Eins og þeir segja alltaf þá er erfiðasta forysta að halda 2-0 því þú þarft að vera með einbeitingu á fullu og allir með fókus. Ég held að við náðum að gera það þó þær skoruðu bara stuttu seinna í síðari hálfleik“ „Við vorum bara mjög skipulagðar og náðum að halda því sem við ætluðum að gera í dag“ Þróttur minnkaði muninn snemma í seinni hálfleik og því var mikilvægt að halda haus. „Það var mjög mikilvæg. Ég held að við séum búnar að lenda undir í flestum leikjum núna í sumar svo ég held að við kunnum að eiga við það. Það var sterkt að ná í þrjú stig í dag“ Sigurinn í kvöld gefur liðinu mikið sjálfstraust en þetta var öflugur sigur á erfiðum útivelli. „Þetta gefur okkur mikið. Við erum nýliðar í deildinni og að spila á móti svona rosalega góðu Þróttara liði sem er búið að standa sig vel og hóta því að vinna titilinn það gefur okkur rosalega mikið og sýnir hvað við getum gert í þessari deild“ sagði Natasha Anasi Erlingsson.
UMF Grindavík UMF Njarðvík Fótbolti Besta deild kvenna Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Sjá meira