Baldur hættur í Garðabænum Valur Páll Eiríksson skrifar 11. maí 2026 14:17 Baldur Þór Ragnarsson er hættur sem þjálfari Stjörnunnar eftir tvö ár í starfi. Vísir / Anton Brink Baldur Þór Ragnarsson er óvænt hættur sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Stjarnan tilkynnti um tíðindin síðdegis.
Baldur óskaði eftir starfslokum við stjórn körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, eftir því sem kemur fram í yfirlýsingu félagsins. Hann hefur þjálfað liðið í tvö tímabil og átti eitt ár eftir af þriggja ára samningi sem hann skrifaði undir sumarið 2024. Stjarnan varð Íslandsmeistari á hans fyrsta ári, síðasta vor, og féll svo út í undanúrslitum fyrir Tindastóli á dögunum í úrslitakeppni Bónus-deildarinnar. Mikil meiðsli hrjáðu Stjörnuna í ár þar sem liðið lék án Orra Gunnarssonar í úrslitakeppninni. Þegar í hana var komið urðu bæði Ægir Þór Steinarsson og Seth Leday fyrir slæmum meiðslum. Stjarnan lenti þá í öðru sæti í VÍS-bikarnum í ár eftir tap fyrir KR í úrslitaleik. Ekki er ljóst hvað tekur við hjá Baldri. Í yfirlýsingu Stjörnunnar segir að leit að nýjum þjálfara sé þegar hafin. Yfirlýsing Stjörnunnar Baldur Þór Ragnarsson hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við Stjörnuna. Gerður var þriggja ára samning við Baldur fyrir um tveimur árum og að loknu úrslitaeinvígi við Tindastól nýtti Baldur sér uppsagnarákvæði og hefur nú þegar lokið störfum hjá okkur. Stjarnan þakkar Baldri fyrir gott samstarf síðustu tvö árin.Þá mun annar af aðstoðarþjálfurum Baldurs, Ilija Omercen, ljúka störfum þann 1. júní næstkomandi. Honum eru jafnframt þökkuð vel unnin störf. Leit er hafin að nýjum þjálfara meistaraflokks karla í 100% starf, þar sem æskilegt er að viðkomandi taki virkan þátt í mótun yngri flokka starfsins með okkur. Við sjáum fyrir okkur styrkingar á leikmannahópnum, samhliða ráðningu nýs þjálfara og endurskoðun samninga við núverandi leikmenn. Það er hinsvegar ljóst að við ætlum okkur áfram að vera í fremstu röð og byggja á öflugum íslenskum kjarna í bland í erlenda atvinnumenn. Skíni Stjarnan Einar Karl Birgisson Formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar
Stjarnan Bónus-deild karla Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira