Hvernig Hveragerði varð fjölskylduvænna á fjórum árum Lárus Jónsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Jónas Guðnason skrifa 11. maí 2026 11:00 Fulltrúar Okkar Hveragerðis í bæjarstjórn og nefndum Hveragerðisbæjar hafa unnið statt og stöðugt að því að tryggja íbúum framúrskarandi þjónustu og lífsgæði í bæjarfélaginu. Rík áhersla hefur verið á fjölskylduvænt samfélag sem mótar að mörgu leyti meginstefið í stefnumálefnum Okkar Hveragerðis og málefnasamningi núverandi meirihluta bæjarstjórnar. Unnið hefur verið markvisst að því að gera þessar áherslur að veruleika á kjörtímabilinu með margvíslegum stuðningi við fjölskyldur og börn. -70% lækkun vistunargjalda á leikskólum og fríar skólamáltíðir í grunnskólanum Frá upphafi kjörtímabilsins hefur verið unnið að lækkun leikskólagjalda og hækkun frístundastyrks í skrefum. Árið 2026 munu leikskólagjöld hafa lækkað um 70% á kjörtímabilinu. Mánaðarleg vistunargjöld á leikskóla fyrir 8 tíma vistun hafa lækkað úr 29.270 kr. í upphafi kjörtímabils niður í 8.800 kr. með því að 6 klst. verði fríar á leikskólum Hveragerðisbæjar - án hækkunar annarra gjaldaliða á móti eða skerðingu þjónustu. Frá og með skólaárinu 2024-2025 hafa nemendur við Grunnskólann í Hveragerði fengið fríar skólamáltíðir. Þá var kostnaður fyrir hvert barn sem var alla skóladaga í skólamáltíð kr. 90.000 á ári sem fjölskyldur grunnskólabarna í bænum þurfa ekki lengur að standa straum af. -Nær tvöföldun frístundastyrks Árið 2026 hefur frístundastyrkur verið hækkaður um 92% á kjörtímabilinu, en hann var í upphafi kjörtímabils 26.000 kr. og nemur 50.000 kr. árið 2026. -Foreldragreiðslur, jöfnun vistunargjalda hjá dagforeldrum og tæming biðlista á leikskólum Til að mæta löngum biðlistum eftir leikskólaplássi í upphafi kjörtímabils var haustið 2022 komið á mánaðarlegum foreldragreiðslum til foreldra barna eldri en 12 mánaða sem höfðu ekki fengið vistunarboð á leikskóla eða hjá dagforeldri. Greiðslurnar námu þá 110.000 kr. á mánuði og árið 2026 nema þær 129.000 kr. á mánuði. Þá eru áfram í gildi reglur Hveragerðisbæjar sem kveða á um viðbótargreiðslur til jöfnunar vistunargjalda hjá dagforeldrum. Þurfi barn að vera í vistun hjá dagforeldri fram að úthlutun á leikskólaplássi þá greiðir Hveragerðisbær viðbótargreiðslur til að jafna kostnað við dagvistunina. Þannig tryggir Hveragerðisbær að foreldrar þurfi ekki að greiða hærri vistunargjöld ef bið er eftir leikskólaplássi. Afar ánægjulegt að segja frá því að með byggingu nýrra deilda við leikskólann Óskaland hefur nú hefur tekist að tryggja öllum börnum í Hveragerði leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Áfram verður unnið að undirbúningi byggingar nýs leikskóla í Kambalandi til að tryggja nægt framboð á leikskólaplássum á komandi árum í takt við áframhaldandi þróun byggðar. -Leitum áfram leiða til stuðnings við barnafjölskyldur Okkar Hveragerði mun áfram leita leiða til að styðja enn betur við barnafjölskyldur í Hveragerði á komandi árum í samtali og samvinnu við bæjarbúa og þannig taka mikilvæg skref til að tryggja stoðir gæðaríks samfélags í fallega bænum okkar. Höfundar skipa 1. -3. sæti á lista Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar