Okkar eigin Bjössaróló! Ingvar Örn Ákason skrifar 11. maí 2026 10:01 Við eigum ótrúlega flott svæði hér innan bæjarmarkanna og þar liggja tækifærin að mínu mati til að stækka Skagakökuna til muna. Fólk keyrir í önnur bæjarfélög fyrir alls konar afþreyingu, hvort sem það er fyrir okkur fullorðna fólkið eða fyrir börnin okkar. Væri ekki gaman að snúa dæminu við? Viljum við ekki hvetja aðra til að koma til okkar? Hvernig eiga aðrir að vita af því sem við eigum ef við segjum engum frá því? Viljum við hafa þessi gæði út af fyrir okkur? Er það þess vegna sem við hugsum ekki stærra og hugsum jafnvel ekki enn betur um það sem við eigum saman? Ef gestir koma hingað að njóta gæðanna sem við sannarlega eigum og versla svo hér í heimabyggð og styðja þar með við atvinnulífið sem er hér til staðar – er þá ekki bara frábært að segja fólki frá öllu því jákvæða sem við eigum? Fólk keyrir langar leiðir upp í Borgarnes til að fara á Bjössaróló. Fólk keyrir langar leiðir í Hafnarfjörð og í Kópavog til að upplifa jólastemningu í Hellisgerði og Jólaskógi. Fólk keyrir langar leiðir inn í falleg bæjarstæði (meira að segja til Reykjavíkur) til að upplifa kósý stemningu og útsýni á veitingastöðum við fallegar smábátahafnir. Fólk keyrir hvert á land sem er fyrir huggulegt baðlón. Fólk keyrir á Vestfirði til að upplifa Rauðasand. Fólk keyrir langar leiðir til að fara í barnvænar sundlaugar í Þorlákshöfn, í Reykjanesbæ og á Álftanesi. Ekkert af þessu fólki keyrir hingað til að upplifa þessa hluti! En af hverju ekki? Væri ekki gaman ef svo væri? Væri ekki gaman ef Merkurtún væri okkar eigin Bjössaróló? Gera svæðið upp með fallegum hætti, með tækjum sem ná til krakkanna og fara í alvöru andlitslyftingu? Það mætti skilgreina fótboltavöllinn betur með tilvísunum í alvöru hetjur úr sögu ÍA. Það mætti búa til svæði fyrir fjölskyldur til að koma saman og eiga notalegar stundir eða svæði þar sem auðvelt er að halda barnaafmæli utandyra. Það væri hægt að loka báðum inngöngum með hliðum og gera þetta svolítið fjölskylduvænt og fallegt. Væri ekki gaman ef Skógræktin væri okkar eigin Hellisgerði og okkar eigin Jólaskógur? Þetta væri ekki flókið i framkvæmd, því við sem samfélag getum sameinast um að búa til alvöru aðventuveislu þar sem ljósin fá að lifa, jólasögur hengdar upp á völdum stöðum, kórar syngja á aðventusunnudögunum fjórum þar sem stemningin eykst með hverjum sunnudeginum nær jólum. Börn allsstaðar af landinu vilja koma í Jólaskógræktina á Akranesi! Af hverju ekki? Okkar börn geta notið enn frekar því þau búa nálægt Jólaskógræktinni og hafa því forskot á sæluna! Seljum ristaðar möndlur og heitt súkkulaði með kósý jólatónlist í gangi allar aðventuhelgarnar og jafnvel á völdum virkum aðventukvöldum. Svo ég tali nú ekki um okkar besta Jón í Miðvogi sem getur verið að selja og sýna jólatré í fötum, tröpputré og allt sem því fylgir. Þetta er alveg stöngin inn úr víti dæmi og enginn í marki. Væri ekki gaman ef svæðið við höfnina væri stútfull af lífi og menningu? Ég hvet ykkur til að standa fyrir ofan höfnina, líta yfir svæðið og reyna svo að segja ykkur sjálfum að þetta sé ekki dauðafæri til að skora þriggja stiga körfu með engan varnarmann fyrir framan ykkur og engin pressa frá áhorfendum í sal! Við skorum þennan þrist með því að byggja upp skemmtilegt og líflegt svæði þarna með veitingastað/kaffihúsi og lífi þar í kring – frábært útsýni yfir eitt fallegasta svæði landsins. Horfið bara út á hafið og ímyndið ykkur! Væri ekki gaman ef Guðlaug, staðsett við okkar allra besta Langasand, fengi upplyftinguna sem hún þarf til að verða heimsfrægt lón? Í það minnsta heimsfrægt á Íslandi! Ef þið getið fundið lón með jafn fögru útsýni þá hnippið þið í mig. Þetta er frábær staðsetning og sem teymi eru Guðlaug og Langisandur vanmetin auðlind Akraness! Þvílík fegurð á einum bletti. Byggjum upp Guðlaugu með alvöru klefum þar sem hægt er að skola almennilega af sér, jafnvel byggja upp frekari innviði sem ýta undir að við getum auglýst og markaðsett þessa snilld sem við búum að hér á Skaganum! Væri ekki gaman ef jafn margir myndu skoða Langasand og fara að skoða Rauðasand? Fáum ferðamanninn hingað að skoða Langasand á sólríkum sumardegi. Tökum myndir, sendum þær út og fögnum þessari strandlengjuveislu. Langisandurinn er og verður alltaf okkar en ég sé ekkert að því að monta okkur aðeins af honum og gera enn meira en við erum að gera. Væri ekki gaman ef við ættum enn barnvænni sundlaug með frábærri sambyggðri innilaug sem hægt er að selja til ferðamanna og íbúa úr öðrum sveitarfélögum? Ég ætla ekki að ljúga og þykjast vita nógu mikið um hvað þarf nákvæmlega til að þetta verði að veruleika og þetta er vissulega það erfiðasta/kostnaðarsamasta í framkvæmd af öllum hugmyndunum í þessum pistli. En engu að síður eitthvað sem við þyrftum að velta upp og ætti að vera hluti af stærri markaðsherferð bæjarins. Þetta er lýðheilsumál fyrst og fremst og við getum öll notið góðs af, hvort sem það er sundfélagið, skólasamfélagið, endurhæfing eða almenn lýðheilsa. Aðstaðan þarf að sjálfsögðu að vera hönnuð með aldraða, fatlaða og hreyfihamlaða í huga því við viljum að við öll getum notið. Við viljum vera með allt upp á tíu í íþrótta- og velferðarsamfélaginu okkar og það má í það minnsta láta sig dreyma.Væri ekki gaman að hrinda framkvæmanlegum og skemmtilegum hugmyndum af stað og markaðssetja bæinn innan sem utan bæjarmarka? Við viljum gera hlutina vel til að ásýndin út á við sé góð en aldrei gleyma því að við þurfum ekki síður að hafa hana góða inn á við og fyrir okkur sjálf. Vegna þess að þó að við fáum fleiri ferðamenn eða gesti hingað þá munu það alltaf verða við Skagamenn sem vonandi nýtum okkar auðlindir mest sjálf. Finnum saman gleðina og leiðina til þess að láta hlutina ganga upp. Væri ekki gaman að setja X við C laugardaginn 16. maí næstkomandi og leyfa okkur öllum að dreyma um enn betra samfélag? Höfundur situr í 3.sæti á lista Viðreisnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Nokkur orð um samkennd Ari Allansson skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir skrifar Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Sjá meira
Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun