Körfubolti

Svaf í Grinda­vík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“

Aron Guðmundsson skrifar
Ólafur Ólafsson er fyrirliði og leiðtoginn í liði Grindavíkur.
Ólafur Ólafsson er fyrirliði og leiðtoginn í liði Grindavíkur. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, gisti í heimabænum með fjölskyldu sinni nóttina fyrir fyrsta leik úrslitaeinvígis Bónus deildarinnar gegn Tindastóls í Grindavík í kvöld. 

„Ég svaf hér í Grinda­vík í nótt, er með svona holl­vina­samning og við fjöl­skyldan ákváðum því að verja nóttinni hér. Það er alltaf gott að vakna í Grinda­vík. Ég er spenntur og til­búinn í slaginn,“ segir Ólafur í samtali við Vísi að morgni leikdags fyrir fyrsta leik gegn Tindastól í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn en Ólafur fluttist búferlum frá Grindavík með fjölskyldu sína eftir að jarðhræringar á Reykjanesskaga fóru á fullt.

„Ég hef ekki gert þetta áður fyrir leik. Ákvað bara, af því að leikurinn er á laugar­degi, að koma hingað með börnin. Gista hér. Við höfum alveg gert það áður en skemmti­leg til­breyting núna fyrir úr­slita­ein­vígið. Maður getur labbað upp í íþrótta­hús og notið þess að anda að sér sjávar­loftinu. Maður fær meira kitl í magann við þetta.“

Jarðhræringar settu líf Grindvíkinga úr skorðumMynd: Björn Steinbekk

Víti til varnaðar

Sem deildarmeistarar er Grindavík með heimavallarréttinn í úrslitaeinvíginu og mikilvægt að nýta hann til hins ítrasta með sigri í kvöld. 

„Eins og er okkur ferskt í minni þá mættum við bara með ein­hvern töffara­skap í fyrsta ein­vígið á móti Njarðvíkingum og töpuðum fyrsta leik. Ef við mætum ekki til­búnir þá töpum við fyrir hvaða liði sem er. Við þurfum að mæta klárir og sýna hvað í okkur býr. Þurfum að eiga alveg topp­leik til þess að vinna þetta sterka lið Tindastóls. Þeir eru vel mannaðir í öllum stöðum. Ef við mætum ekki klárir þá bara hrein­lega töpum við. Ég hef bara ekki trú á því að það sé ein­hver leik­maður í okkar liði sem mætir ekki til­búinn í kvöld.“

Ætla mætti að leikmenn Grindavíkur mæti með mikið sjálfstraust í leik kvöldsins eftir að hafa tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu með sigri á Val í oddaleik í Grindavík á dögunum. Í þeim leik sýndi Grindavík, að margra mati, sína bestu frammistöðu í úrslitakeppninni til þessa.

„Það yrði bara svolítið skrýtið ef við værum ekki klárir. Alveg frá fyrsta manni niður í þann tólfta. Þetta er skemmti­legasti tími ársins ef þú ert körfu­bolta­maður. Ef þú mætir ekki til­búinn í fyrsta leik í úr­slitum þá geturðu bara verið heima hjá þér. Það er eins gott að við mætum klárir. Ég hef ekki trú á öðru. Við mætum klárir, fólkið í Grinda­vík líka, Stinning­skaldi. Það er eitt­hvað rosa fal­legt við þetta. Að vera frá Grinda­vík og vera halda inn í fyrsta leik í úr­slita­ein­víginu í Grinda­vík. Það er eitt­hvað fal­legt í loftinu.“

Samstaðan hjá Grindvíkingum er mikil. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Gefur fólkinu mikið

Á þessu tímbili sneru lið Grindavíkur aftur á heimavöll sinn í Grindavík eftir að hafa neyðst til þess að spila í Smáranum tímabilið á undan. Úrslitakeppnin aftur mætt til Grindavíkur og það hefur gefið fólkinu þar mikið.

„Það er bara geggjað. Eins og Jóhann bróðir sagði eftir síðasta leik. Við fáum aldrei nóg af því að tala um það hvað þetta hefur gert mikið fyrir okkur. Að sjá fólkið koma hér saman. Þetta gefur fólki mikið og hefur verið gaman að sjá hversu spennt fólk er fyrir þessu. Seldist upp á leik kvöldsins á ein­hverjum mínútum. Ótrú­lega fal­legt.“

Það er ávallt frábær stemning í HS-orku höllinniVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Oddaleikur eftir oddaleik

Baráttan um Íslandsmeistaraititlinn í efstu deild karla hefur ráðist í oddaleik undanfarin fjögur tímabil og kæmi ekki á óvart að einvígi Grindavíkur og Tindastóls gerði það líka. Ólafur býst við mikilli skák í rimmu liðanna tveggja.

„Veltur á því hvort liðið verður klárara í hvern í leik í þessu ein­vígi. Þetta verða jafnir leikir, ekkert burst. Það lið sem verður klárt. Til­búið að leggja allt í sölurnar. Það lið mun standa uppi sem sigur­vegari. Ef við gerum það þá gerast góðir hlutir.“

Aftur í séns og hungrið mikið

Ólafur hefur í tvígang orðið Íslandsmeistari með Grindavík. Síðast árið 2013. Hann komst nálægt þriðja Íslandsmeistaratitlinum árið 2024 en Grindavík tapaði þá í oddaleik gegn Val. Hungrið hjá Ólafi er mikið. Hann vill þriðja titilinn.

„Ég held því enn fram að ef ekkert hefði gerst hér í Grinda­vík árið 2023 þá værum við búnir að verða Ís­lands­meistarar síðan þá. Við erum komnir í séns aftur. Það er eins gott að nýta hann til fulls. Mæta klár og gera sitt allra besta til þess að lyfta þeim stóra. Það þarf að vinna þrjá leiki. Þú þarft að vinna Tindastól þrisvar sinnum til þess að verða Ís­lands­meistari. Það er ákveðið verk­efni. Mark­miðið er skýrt.“

Fyrsti leikur Grindavíkur og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Upphitun fyrir leik með Stefáni Árna Pálssyni og sérfræðingum hans hefst klukkan hálf sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×