Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 8. maí 2026 13:21 Haukur Hinriksson, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings fagnar nýjum samningi við Reykjavíkurborg sem felur í sér afnot af tíu þúsund fermetra lóð í Fossvogsdal og framtíðaruppbyggingu mannvirkja, m.a. knatthúss í Safamýri. Vísir Framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins Víkings fagnar samningi við borgarráð um að félagið fái alls um tíu þúsund fermetra lóð sem Gróðrastöðin Mörk hefur haft afnot af í Fossvogsdal. Þá feli samningurinn í sér að borgin muni sjá um sjá um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Safamýri og við Traðarland. Fyrsta verkefnið verði bílastæði í Fossfogsdal.
Borgarráð samþykkti í gær að afhenda íþróttafélaginu Víkingi tíu þúsund fermetra lóð í Fossvogsdalnum sem Gróðrarstöðin Mörk hefur haft afnot af. Þá færðist eignarhald núverandi íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland til Reykjavíkurborgar sem tekur þar með að sér viðhald og frekari uppbyggingu þar og í Safamýri. Haukur Hinriksson framkvæmdastjóri Víkings fagnar því að málið sé loks til lykta leitt en hluti þess á rætur sínar að rekja til ársins 2008 þegar þáverandi borgarstjóri lofaði félaginu lóðinni í Fossvogsdal. Þetta eru í fyrsta lagi mikil tímamót og mikil ánægja innan félagsins með þennan samning sem loksins náðist við Reykjavíkurborg í gær. Það sem var samþykkt í borgarráði í gær var samningur frá 2026 til 2035 sem felur m.a. í sér að borgin sér um framtíðaruppbyggingu á svæðum Víkings við Traðarland og Safamýri. Inni í samkomulaginu er stærsta atriðið knatthús sem borgin fyrirhugar að reisa í Safamýri. Haukur segir að Víkingur afsali sér eignum á móti. Á sama tíma og Reykjavíkurborg lofar þessari framtíðaruppbyggingu er Víkingur að gefa eftir eignarhald á mannvirkjum sínum sem eru metin á 2,5 milljarða króna,“ segir hann. Haukur býst við að hægt verði að hefja framkvæmdir á bílastæði í Fossvogsdal strax á næsta ári á svokölluðu A- svæði sem nú er ræktunarreitur Gróðrarstöðvarinnar Markar. Fyrirhugað er að byggja bílastæði og fl. á svæði A en þar verður byrjað að framkvæma samkvæmt samningnum við Reykjavíkurborg. Vísir „Við búumst við að geta hafið framkvæmdir þar strax árið 2027,“ segir Haukur. Deiliskipulag fyrirhugað á næstunni Áður en kemur til breytinganna þarf að gera og samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Haukur telur að það muni ekki dragast á langinn. Víkingur fær svo næsta reit, svokallaðan B- reit í Fossvogsdal, afhentan árið 2032. „Á svæði B sjáum við fyrir okkur uppbyggingu á hverfastarfsemi félagsins, íþróttastarfsemi og jafnvel skólastarfsemi,“ segir hann. Telur alla sátta við niðurstöðuna Haukur telur að flestir hagaðilar að samningnum geti gengið sáttir frá borði. Við erum sannfærð að allir þeir sem áttu hlut að máli geti gengið sáttir frá borði. Við trúum því,“ segir Haukur. Aðspurður hvort hann telji að það eigi líka við um eigendur Gróðrarstöðvarinnar Markar svarar Haukur: „Ég hugsa nú eins og eigandinn kom inn á sjálfur, að það séu ákveðin tímamót að það sé búið að höggva á þennan hnút.“
Víkingur Reykjavík Reykjavík Borgarstjórn Skipulagsmál Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Fleiri fréttir Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Sjá meira