Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Samúel Karl Ólason skrifar 7. maí 2026 14:33 Ein kvennanna, sonur hennar og menn sem aðstoðuðu konurnar á flugvellinum í Melbourne. AP/Joel Carrett, AAP Þrjár konur sem dvalið hafa um árabil í búðum fyrir fjölskyldur erlendra vígamanna Íslamska ríkisins lentu í Ástralíu í dag. Ein verður ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi og hinar tvær fyrir þrælahald. Konurnar eru hluti af stærri hópi kvenna frá Ástralíu sem ferðuðust á sínum tíma til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og börn þeirra.
Þegar kalífadæmi ISIS-leið undir lok árið 2019 sátu þúsundir kvenna og börn þeirra föst í Sýrlandi og hefur þeim verið haldið í sérstökum búðum af sýrlenskum Kúrdum í gegnum árin. Aðstæður í þessum búðum voru ekki góðar. Þeim var í síðasta mánuði sleppt úr áðurnefndum búðum í Sýrlandi, eftir að hafa dvalið þar í á sjöunda ár. Síðan þá hafa þær reynt að komast til Ástralíu en yfirvöld þar hafa neitað að aðstoða þær með nokkrum hætti. Tvær kvennanna lentu í Melbourne og sú þriðja í Sydney. Í gær bárust fregnir af því að fjórar konur og níu börn væru á leið til Ástralíu en óljóst er hvar sú fjórða er. Konurnar voru ekki handteknar á flugvellinum en verða ákærðar í kvöld eða á morgun. Í frétt Ríkisútvarps Ástralíu segir að talið sé að konurnar þrjár sem voru handteknar í dag séu Kawsar Abbas (53), Zeinab Ahmed (31) og Janai Safar (32). Hópur manna beið kvennanna Þegar konurnar lentu í Melbourne beið hópur manna, sem flestir voru svartklæddir og jafnvel með grímur, eftir þeim á flugvellinum. Næstum því þremur klukkustundum eftir að flugvélin lenti komu konurnar fram og fylgdu mennirnir þeim í smárútu fyrir utan flugvöllinn. Samkvæmt ABC kom til lítilsháttar stympinga milli einhverra manna og blaðamanna en þungvopnaðir lögregluþjónar fylgdust með. Hér að neðan má sjá myndefni sem tekið var upp á flugvellinum í Melbourne í dag. WATCH: The moment an ‘ISIS bride’ and child emerge at Melbourne Airport, greeted by literal ISIS supporters packing the arrivals lounge.Why are ISIS supporters roaming free in our country? A clear national security risk and shocking betrayal.Pray for Australia. 🇦🇺 pic.twitter.com/2nYWLzQGl9— Osher Feldman (@OsherFeldman) May 7, 2026 Þegar vígamenn Íslamska ríkisins fóru eins og stormsveipur um stóra hluta Sýrlands og Írak árið 2014 og stofnuðu í kjölfarið kalífadæmi þeirra þar, ferðaðist fjöldi fólks til Sýrlands með því markmiði að ganga til liðs við samtökin. Þar á meðal voru margar konur en þegar þær komu til Sýrlands voru þær yfirleitt fljótt giftar vígamönnum. Þess vegna hafa þær í gegnum árin verið kallaðar „brúðir ISIS“. Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag kom fram að konurnar sem handteknar voru í Melbourne hefðu verið ákærðar fyrir glæpi gegn mannkyni, þar á meðal þrælahald. Það var algengt í kalífadæmi Íslamska ríkisins og beindist að miklu leyti gegn Jasídum. Sjá einnig: „Svo lengi sem ég lifi mun ég óttast þá“ ISIS-liðar litu á Jasída sem djöfladýrkendur og þurrkuðu út heilu þorp þeirra í Írak og Sýrlandi. Þúsundir Jasída voru afhöfðaðir, brenndir lifandi. Þá rændu vígamenn þúsundum kvenna og stúlkna og hnepptu í þrældóm. Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint árásir ISIS-liða á Jasída sem þjóðarmorð. Áðurnefndar konur tvær standa frammi fyrir allt að tuttugu og fimm ára fangelsisvist. Þriðja konan, sú sem var handtekin í Sidney, var ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi og fyrir að ferðast til bannaðs svæðis. Hún stendur frammi fyrir allt að tíu ára dómi. Engar upplýsingar voru gefnar um börn kvennanna á blaðamannafundinum í dag. Í mörgum tilfellum þar sem erlendir vígamenn ISIS hafa snúið aftur til síns heima hefur reynst erfitt að sakfella þá fyrir dómstólum, þar sem lítið hefur verið um raunveruleg sönnunargögn um að þeir hafi gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin. Í flestum ríkjum var ekki ólöglegt að ferðast til Sýrlands, ef yfirhöfuð var hægt að sanna að viðkomandi hefði farið til Sýrlands. Ástralar gerðu það þó ólöglegt að fara til Sýrlands á sínum tíma. Þetta er stór ástæða þess að sýrlenskir Kúrdar hafa setið uppi með þetta fólk í gegnum árin.
Ástralía Sýrland Hryðjuverkastarfsemi Erlend sakamál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira