Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Árni Sæberg skrifar 7. maí 2026 05:02 Aðeins 37 prósent Reykvíkinga finnst ruslatunnurnar vera tæmdar tímanlega. Vísir/Vilhelm Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem útvistar ekki sorphirðu og þar telja aðeins 37 prósent íbúa vel ganga að tæma tunnur tímanlega. Íbúar Kópavogs telja flestir að vel gangi að tæma tunnurnar, eða 78 prósent.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs á sorpþjónustu í stærstu sveitarfélögum landsins. „Á Íslandi eru víða tækifæri til að auka samkeppni í sorpþjónustu heimila. Á stórum hluta markaðarins fer starfsemi fram án útboðs, sem getur leitt til hærri kostnaðar og lakari þjónustu. Með útvistun, skýrari ábyrgð og afmörkun verkefna sveitarfélaga má auka samkeppni og árangur í málaflokknum,“ segir í upphafi hennar. Kostnaður hækkað um helming frá 2021 Kostnaður vegna sorpþjónustu hafi hækkað nærri tvöfalt hraðar en almennt verðlag og verulega umfram aðra liði tengdum rekstri og viðhaldi fasteigna. Sorpþjónusta hafi hækkað um 104 prósent að raunvirði frá 2008 á meðan aðrir liðir á borð við húshitun, fráveitu, viðhald og viðgerðir, og vatn hafi hækkað minna. Þróun kostnaðarliða vegna reksturs húsnæðis frá 2008.Viðskiptaráð Hækkanir hafi verið sérstaklega miklar frá því að ný lög um meðhöndlun úrgangs tóku gildi árið 2021, eða um nærri 50 prósent að raunvirði. Sama ár hafi fjölmörg dæmi verið um miklar hækkanir gjalda vegna sorpþjónustu í einstökum sveitarfélögum, til dæmis um 38 prósent í Mosfellsbæ og 20 prósent í Kópavogsbæ og Reykjavíkurborg. Allt að 23 þúsund króna munur á ári Árlegur meðalkostnaður vegna sorpþjónustu heimila sé 75 þúsund krónur í stærstu sveitarfélögum landsins. Gjöldin séu hæst í Reykjavíkurborg og nemi 85 þúsund krónum á ári, en lægst í Reykjanesbæ, eða 62 þúsund krónur. Meðalheimilið greiðir 75 þúsund krónur á ári fyrir sorphirðu.Viðskiptaráð Kostnaðurinn byggi á því að heimili hafi tvær tvískiptar tunnur, fyrir blandaðan úrgang og matarleifar annars vegar og pappír og pappa hins vegar, auk fasts gjalds vegna grenndargáma. Þá segir að sorpþjónustu sveitarfélaga megi í meginatriðum skipta í þrjá þætti: sorphirðu, sorpmóttöku og sorpvinnslu. Sorphirða snúi að söfnun heimilisúrgangs úr sorptunnum og sorpmóttaka fari fram á á grenndar- og endurvinnslustöðvum, og líka á móttökustöðvum. Síðasta skref sorpþjónustu sé síðan sorpvinnsla, en henni megi skipta í tvennt: annars vegar þann hluta sem fer að mestu fram innanlands; endurvinnslu, gas- og jarðgerð og urðun. Hins vegar þann hluta sem fer fram erlendis; sorpbrennslu til orkunýtingar eða endurvinnslu. Mest samkeppni á Akureyri og í Reykjanesbæ Mest samkeppni sé í sorpþjónustu á Akureyri og í Reykjanesbæ en engin samkeppni sé í Reykjavíkurborg. Stig samkeppni byggi á því hvort sorphirða- eða móttaka sé boðin út og með hvaða hætti. Í sorphirðu sé virk samkeppni í öllum stærstu sveitarfélögum landsins að Reykjavíkurborg undanskilinni. Það sé vegna þess að öll sveitarfélög nema Reykjavíkurborg bjóða út sorphirðu. Raunar sé Reykjavíkurborg eitt af aðeins sjö sveitarfélögum sem útvista ekki þjónustunni. Hin sveitarfélögin séu Ásahreppur, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra, Strandabyggð, Kaldrananeshreppur og Árneshreppur. Akureyri fær fjögur stig á semkeppnisskala Viðskiptaráðs.Viðskiptaráð „Sveitarfélögum eins og Akureyrarbæ og Reykjanesbæ hefur tekist að skapa virka samkeppni um sorphirðu með því að skipta upp útboði þjónustunnar. Akureyrarbær býður út söfnun heimilissorps og tæmingu grenndargáma í sitt hvoru lagi. Reykjanesbær skiptir söfnun heimilissorps í tvö útboð, þ.e. almennt sorp og lífrænan úrgang annars vegar og pappír, pappa og plast hins vegar. Þannig sinna tveir aðilar sorphirðu í báðum sveitarfélögum í óbeinni samkeppni.“ Sem dæmi um ávinning útvistunar sorpþjónustu vísar Viðskiptaráð til þess þegar Akureyrarbær bauð út sorphirðu í fyrsta sinn árið 2010. Tilboð Gámaþjónustu Norðurlands hafi þá verið 54 prósent undir kostnaðarmati bæjarins, og útvistunin hafi þannig sparað sveitarfélaginu um 700 milljónir króna. Fáum Kópavogsbúum finnst þeir sitja uppi með ruslið Þá segir að verulegur munur sé á upplifun íbúa höfuðborgarsvæðisins á því hversu vel gangi að tæma sorptunnur á réttum tíma. Flestir í Kópavogsbæ telji ganga vel að tæma tímanlega, eða 78 prósent íbúa, en hlutfallið sé næst hæst í Garðabæ, eða 58 prósent. Kópavogur skarar fram úr hvað tímanlega sorphirðu varðar, að mati íbúa.Viðskiptaráð Á hinn bóginn telji um helmingur íbúa í Seltjarnarnesbæ að tæming hafi gengið vel, eða 49 prósent. „Mest ber þó á neikvæðu mati íbúa í Reykjavík þar sem aðeins 37 prósent telja tæminguna hafa gengið vel en sveitarfélagið er það eina sem sinnir þjónustunni sjálft án útboðs.“ Úttekt Viðskiptaráðs má sjá í heild sinni hér. Þar má til að mynda finna hugmyndir ráðsins um úrbætur, til að mynda niðurlagning Sorpu í núverandi mynd. Athugasemd: Könnun um sorphirðu sem Viðskiptaráð vísar til er þriggja ára gömul. Dæmi eru um að aðrir sjái um sorphirðu nú en gerðu þá, til að mynda í Kópavogi.
Sorpa Sorphirða Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Sjá meira