Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Lovísa Arnardóttir skrifar 5. maí 2026 17:45 Nemendur eru hvattir til að hafa samband við kennara ef þeir telja sig hafa orðið fyrir truflun. Vísir/Vilhelm Mögulegt er að gögnum um nemendur í Háskóla Íslands og skilaboð þeirra á milli hafi verið stolið í „öryggisatviki“ sem kom upp í Canvas-námsumsjónarkerfinu undanfarna daga. Póstur var sendur á nemendur skólans síðdegis í dag.
Þar kemur fram að atvikið hafi komið upp hjá þjónustuaðila Canvas, Instructure, og að það hafi valdið tímabundnum truflunum á virkni kerfisins. Í tilkynningu segir að atvikið tengist alþjóðlegri þjónustu Canvas og að það hafi haft áhrif víðar en hjá Háskóla Íslands. Fjallað er um gagnastuldinn á erlendum háskólasíðum og miðlum. Gögnum virðist þannig einnig hafa verið stolið af 44 háskólum í Hollandi og af nemendum í sænska háskólanum Karolinska. „Viðbragðsteymi hafa nú brugðist við og hefur námsumsjónarkerfið verið fært í eðlilegt horf,“ segir í tilkynningunni sem Margrét Sigrún Sigurðardóttir, sviðstjóri kennslusviðs, sendi á alla nemendur skólans. Hún segir jafnframt í tilkynningu sinni að samkvæmt upplýsingum frá þjónustuaðilanum sé mögulegt að óviðkomandi aðilar hafi fengið aðgang að ákveðnum notendaupplýsingum, svo sem nafni, netfangi og skilaboðum milli notenda í Canvas. Nemendur hvattir til að hafa samband „Að svo stöddu liggja ekki fyrir neinar upplýsingar um að notendur Háskóla Íslands hafi orðið fyrir áhrifum. Rannsókn á vegum þjónustuaðila stendur enn yfir og fylgjumst við náið með framvindu hennar. Við munum upplýsa um stöðuna um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir,“ segir Margrét í tilkynningunni. Til að bregðast við var endurvakin tenging á milli Canvas og ritstuldarvarnarkerfisins Turnitin. Í tilkynningu segir að sú vinna hafi staðið í um sólarhring og að á þessum tíma hafi verkefnin borist í Canvas en ekki Turnitin. Nemendur eru hvattir til að hafa samband við kennara ef þeir telja sig hafa orðið fyrir truflun vegna atviksins. Margrét segir að Háskólinn muni áfram fylgjast grannt með upplýsingagjöf frá Instructure. „Komi fram nýjar upplýsingar eða tilefni til frekari aðgerða munum við upplýsa ykkur án tafar,“ segir Margrét að lokum.
Háskólar Tækni Netglæpir Skóla- og menntamál Hagsmunir stúdenta Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira