„Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Kristján Már Unnarsson skrifar 4. maí 2026 22:43 Jón Helgi Jónsson og Magnús Markússon, strandveiðisjómenn á Dýu HF-14. Lýður Valberg Um 320 smábátar héldu til strandveiða í dag á upphafsdegi veiðanna. Það eru innan við fjörutíu prósent þeirra ríflega áttahundruð báta sem komnir eru með strandveiðileyfi fyrir sumarið en bræla hamlaði veiðum á norðausturhluta landsins.
Í kvöldfréttum Sýnar tókum við púlsinn á trillukörlum sem voru að sigla inn til löndunar í Hafnarfirði í dag. Þeir létu ekkert sérstaklega vel af fiskiríinu. Þetta var þó hinn vænsti þorskur sem verið var að landa úr Auðnu HF-2, en aðeins 350 kíló af þorski, og sjómaðurinn hundsvekktur að hafa náð bara helmingnum af leyfilegu hámarki dagsins, sem er 774 kíló. Frá löndunarbryggjunni í Hafnarfirði í dag. Aflinn úr Auðnu í körunum.Lýður Valberg Skömmu áður höfðu þeir Jón Helgi Jónsson og Magnús Markússon landað úr Dýu og náðu heldur ekki dagskvótanum. „Það gekk frekar illa, það var vont veður og kalt. Við vorum með 600 kíló af þorski,“ sagði Jón Helgi. „Ég held þú hefðir átt að vera með okkur í nótt. Það var mjög erfitt. Þetta var erfiður túr.“ -Og fóruð þið bara af stað í nótt? „Já, klukkan eitt í nótt.“ -En þið standið samt í þessu? „Það er að hafa gaman að þessu. Það er gaman að þessu,“ segir Jón Helgi. „Báðir hættir að vinna. Ég er svona aðstoðarmaður hjá honum,“ bætir Magnús við. -En fiskverð er nú svona með hæsta móti og besta móti, er það ekki? „Jú, það er mjög gott fiskverð.“ -Hvað eruð þið að fá fyrir kílóið? „Sex- sjöhundruð kall, eitthvað svoleiðis,“ svarar Magnús. „Það fer eftir stærðinni. Stærsti fiskurinn er á góðu verði,“ segir Jón Helgi. -Þið eruð að fá nánast ókeypis kvóta og alltaf verið að bæta í. Eruð þið ekki sáttir við það? „Ókeypis? Nei, þetta er ekkert ókeypis. Við eigum þetta,“ svarar Magnús. „Á ekki þjóðin kvótann? Á ekki þjóðin fiskinn?“ spyr Jón Helgi. -Og þið viljið alltaf meira? „Auðvitað. Við viljum bara fá það sem er okkar,“ svarar Jón Helgi. Strandveiðibáturinn Día í Hafnarfjarðarhöfn í dag.Lýður Valberg -Það er ekkert tryggt að þið fáið að veiða 48 daga í sumar? „Nei, ég held að þess þurfi ekki hérna í Hafnarfirði. Það hefur aldrei verið neinn fiskur í júlí, ágúst,“ segir Jón Helgi. „Ég held að það hafi verið tólf dagar í fyrra sem við fórum,“ segir Magnús. Þeir segjast yfirleitt bara róa tíu til tuttugu daga á sumri en eru ekki bjartsýnir um að komast mikið á sjó þessa vikuna. „Gætum kannski farið einn dag í viðbót í þessari viku. En svo er bræla það sem eftir er,“ segir strandveiðsjómaðurinn Jón Helgi Jónsson. Samkvæmt tölum sem Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, tók saman, eru 813 bátar komnir með strandveiðileyfi. Af þeim lönduðu 318 bátar alls 235 tonnum í dag og var meðaltal þorskafla 738 kíló á bát. Langflestir bátanna sem héldu til veiða í dag voru á A-svæði, eða Vesturlandi, 183 talsins. Langfæstir hófu veiðar á C-svæði, eða Norðaustur- og Austurlandi, eða aðeins fjórtán bátar, sem að mati Arnar skýrist af brælu.
Strandveiðar Sjávarútvegur Hafnarfjörður Tengdar fréttir „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ „Þá eru öll sund lokuð. Við verðum þá að una við það. Það er náttúrulega mjög svekkjandi að ná ekki að framlengja veiðarnar. Þetta eru um 800 bátar sem eru að stunda þær og bara mjög fjölmennur vinnustaður og allt í kring. “ 17. júlí 2025 23:03 Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Atvinnuvegaráðherra segist ekki hafa fundið neina lausn til þess að lengja strandveiðitímabilið en frumvarp hans náði ekki fram að ganga á vorþingi. Málaflokkurinn hefur verið færður um ráðuneyti. 17. júlí 2025 15:09 Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Sjá meira
„Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ „Þá eru öll sund lokuð. Við verðum þá að una við það. Það er náttúrulega mjög svekkjandi að ná ekki að framlengja veiðarnar. Þetta eru um 800 bátar sem eru að stunda þær og bara mjög fjölmennur vinnustaður og allt í kring. “ 17. júlí 2025 23:03
Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Atvinnuvegaráðherra segist ekki hafa fundið neina lausn til þess að lengja strandveiðitímabilið en frumvarp hans náði ekki fram að ganga á vorþingi. Málaflokkurinn hefur verið færður um ráðuneyti. 17. júlí 2025 15:09