Erlent

Saka borgina um að víkja sér undan á­byrgð

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum verður rætt við verkalýðsforkólfa sem saka Reykjavíkurborg um að víkja sér undan ábyrgð þegar borgarstarfsmenn verða fyrir tjóni við störf sín. 

Þá fjöllum við um hættuna á gróðureldum í þurrkatíðinni þetta vorið. Sviðsstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir öll meðferð elds úti í náttúrunni varasama á þessum árstíma.

Að auki verður rætt við fulltrúa fasteignafélagsins Reita sem segjast geta reist fullbúna skólabyggingu fyrir helming þess kostnaðar sem þekkist í Reykjavíkurborg og það á aðeins sex mánuðum.

Og í sportpakkanum verður hitað upp fyrir nokkra stórleiki sem eru á dagskrá í íslensku íþróttalífi í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×