Handbolti

Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Orri Freyr Þorkelsson hefur orðið deildarmeistari á hverju einasta tímabili með Sporting. 
Orri Freyr Þorkelsson hefur orðið deildarmeistari á hverju einasta tímabili með Sporting.  Getty/Gualter Fatia

Orri Freyr Þorkelsson varð portúgalskur meistari þriðja árið í röð með liði Sporting, eftir 36-29 sigur gegn Porto í kvöld.

Sporting tryggði sér meistaratitilinn með sigrinum í kvöld þó tvær umferðir séu eftir af deildarkeppninni. Orri Freyr skoraði fimm mörk og sigurinn var nokkuð öruggur.

Leikurinn hefði kannski orðið meira spennandi ef Salvador Salvador, liðsfélagi Þorsteins Leó Gunnarssonar og einn besti leikmaður Porto, hefði ekki fengið rautt spjald fyrir að taka andstæðing hálstaki þegar um tuttugu mínútur voru eftir.

Sporting sigldi fram úr á lokamínútunum og vann á endanum sannfærandi sjö marka sigur. 

Sporting er sigursælasta lið í sögu portúgalska handboltans. Þetta var 24. deildarmeistaratitill liðsins og sá þriðji í röð. Með sigri gegn Benfica í bikarúrslitum þann 7. júní getur Sporting svo orðið bikarmeistari í 19. sinn en það yrði þá fimmta skiptið í röð.

Fagnaðarlæti Orra Freys og fleiri nýkrýndra Portúgalsmeistara má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×