„Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Freyja Þórisdóttir skrifar 2. maí 2026 16:54 Að sögn vegfaranda varð ekki vart við vinnu við aðra byggingareiti í hverfinu þar sem verið er að byggja fyrir einkaaðila en Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir að málið sé í ferli. Aðsend/Vísir/Sigurjón Ólason Í gær, verkalýðsdaginn 1. maí, voru starfsmenn starfandi við uppbyggingu íbúðarblokka vestan við Hlíðarenda, á Valsreitnum svokallaða. Íbúðirnar eru reistar á vegum Bjargs, húsnæðissjálfseignarstofnunar sem ætlað er að reisa íbúðir án hagnaðarmarkmiða.
Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB og á síðu félagsins segir að því sé ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. „Þetta er ekki búið að koma inn á borð, en það sem ég segi bara er að við höfum ekki greinilega fylgst með þessum undirverktökum okkar. Við ætlumst til þess að hvort sem það eru menn að vinna fyrir okkur eða aðra að það sé frí á 1. maí. Þetta er frídagur verkalýðsins,“ segir Friðbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ í samtali við blaðamann Vísis. Ekki tekið til baka Þá segist hann ekki vera búinn að setja sig almennilega inn í málið en að hann geri fastlega ráð fyrir því að Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs, muni setja sig í samband við verktakann strax eftir helgi. „Þetta er ekki tekið til baka þannig að við bara minnum á að þetta er frídagur allra, hvort sem það eru erlendir starfsmenn eða íslenskir,“ segir hann og bætir við að þrátt fyrir að þau hjá ASÍ og BSRB fylgist ekki mjög grannt með allri starfsemi Bjargsins þá eigi svona lagað ekki að koma fyrir. „Við náttúrulega göngum ekki daglega á milli vinnustaða þar sem er verið að vinna hjá Bergi en þetta á bara ekki að gerast. Ekki frekar en að verslanir eiga að vera opnar,“ segir Friðbjörn og tekur undir með þeim sem hafa haft orð á því að málið sé að vissu leyti vandræðalegt. „Já, þetta lúkkar ekki vel,“ segir hann.
Húsnæðismál ASÍ Verkalýðsdagurinn Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira