„Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. maí 2026 21:33 Ratko Mladić fór fyrir herum Bosníuserba og fyrirskipaði morð á þúsundum. Getty Lögmenn hafa farið fram á það fyrir alþjóðadómstólnum í Haag að stríðsglæpamaðurinn Ratko Mladić verði látinn laus á grundvelli þess að hann sé við dauðans dyr. Hann fékk minniháttar slag í síðasta mánuði og heilsu hans hrakar hratt.
Mladić var æðsti yfirmaður hers Bosníuserba í Júgóslavíustríðinu og sá sem fyrirskipaði fjödamorðin í Srebrenica auk annarra ódæða. Þar voru á níunda þúsund manna og drengja teknir af lífi árið 1995 eftir að friðargæsluliðar höfðu verið flæmdir þaðan burt. Hann hlaut viðurnefnið „Slátrarinn frá Bosníu“ fyrir framgöngu sína á ófriðarárunum. Eftir mörg ár í felum var hann handtekinn árið 2011 og sakfelldur fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu árið 2017 og dæmdur í lífstíðarfangelsi. Frá árinu 2011 hefur hann setið í fangelsi á vegum Sameinuðu þjóðanna í Haag í Hollandi. Lögmenn hans segja að innan veggja fangelsisins fái hann ekki þá umönnun sem hann þarf á að halda og að fangelsisvist hans þjóni ekki lengur neinum tilgangi. Serbnesk stjórnvöld hafa einnig tilkynnt alþjóðadómstólnum að þau séu tilbúin að veita dómstólnum tryggingar verði hann látinn laus. Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins mótmæla hagsmunasamtök fórnarlamba hans því harðlega. Graciela Gatti Santana dómari hefur farið fram á að heilsa Mladić verði gaumgæfilega metin og hyggst ákvörðun í kjölfarið. Skýrslu um heilsu hans mun hafa verið skilað til dómsins í dag.
Bosnía og Hersegóvína Serbía Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Fleiri fréttir „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Sjá meira