Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Freyja Þórisdóttir skrifar 1. maí 2026 11:10 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Vísir/Vilhelm Styrkur sem nemur 107 milljónum króna fer til Vestmannaeyjabæjar í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn Flakkarans. Það er eitt þeirra átján verkefna sem fékk styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkjanna nemur um 490 milljónum króna og dreifast þeir víðs vegar um landið.
Þetta er meðal þess sem fram kemur á vef Stjórnarráðsins en þar segir einnig að „sérstök áhersla hafi verið lögð á öryggi á ferðamannastöðum við úthlutun að þessu sinni“ en Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði styrkjunum í gær. „Öryggi á ferðamannastöðum á Íslandi er ekki einungis á ábyrgð stjórnvalda, heldur sameiginlegt verkefni okkar allra sem vinnum að málefnum ferðaþjónustunnar,“ sagði atvinnuvegaráðherra og bætti við að þrátt fyrir að stórbrotin náttúra Íslands heilli vissulega geti hún líka verið óvægin. Sem fyrr segir var hæsta styrknum úthlutað til Vestmannaeyjabæjar en þar verður þann tólfta maí afhjúpaður fyrri hluti listaverksins Sjónarhorn flakkarans, á ensku The Wanderer´s Perspective. Listaverkið í Eyjum er hugsað til þess meðal annars að auka öryggi á svæðinu og bæta náttúruvernd en þar sem nú eru troðningar mun vera göngustígur. Göngustígurinn hluti af upplifuninni Listamaðurinn Ólafur Elísasson stóð að verkinu en það er minnisvarði um eldgosið í Heimaey sem samanstendur af útsýniskúlu sem horfir yfir Eldfell og göngustíg í kringum gíginn. Í samtali við blaðamann Vísis sagðist Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, vera gríðarlega spenntur fyrir verkefninu og athöfninni þar sem það verður afhjúpað. Staðsetning kúpulsins miðast við stöðu sólarinnar og fangar til dæmis geisla hennar beint inn um ljósopið klukkan hálf eitt 23. janúar hvers árs til minnis um eina af minnisstæðustu dagsetningunum í sögu eldgossins.Vísir/Smári Jökull „Þarna er verið að víga þennan fyrri hluta sem er þessi skáli eða kúpull sem listamaðurinn hannaði og var smíðaður í Þýskalandi og markar upphafið að því að ljúka við göngustíginn í kringum gíginn sem er órjúfanlegur þáttur af upplifuninni,“ segir hann en styrkveitingin snýr að göngustígnum. Á vef Stjórnarráðsins segir: „Hæsti styrkur úr sjóðnum í ár fer til Vestmannaeyjabæjar vegna gerðar göngustíga á Eldfell í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer‘s Perspective). Meginmarkmið verkefnisins er að tryggja öryggi ferðamanna og vernda viðkvæma náttúru svæðisins en um leið minnast eldgossins á Heimaey 1973.“ Þau verkefni sem hlutu næsthæstu styrkina eru Reykjadalsgönguleiðin, bætt öryggi og betra aðgengi niður að Jöklu við austanvert Stuðlagil og loks Fjöreggið í Stykkishólmi. Hægt er að skoða staðsetningu hvers verkefnis á korti Ferðamálastofu.
Styttur og útilistaverk Vestmannaeyjar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heimaeyjargosið 1973 Menning Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira