Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. apríl 2026 15:49 Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar óskar eftir meira samráði af hálfu Vegagerðarinnar. Vísir/Bjarni Bæjarstjóri Vesturbyggðar er ósáttur við samráðsleysi þegar tekin er ákvörðun um að sigla ferjunni Baldri til Vestmannaeyja þar sem henni er ætlað að leysa af Herjólf. Tveir starfsmenn á vegum Orkubús Vestfjarða eru strandaglópar í Flatey vegna brotthvarfs Baldurs. „
Þessir starfsmenn hefðu svo sannarlega nýtt sér ferðina í gær ef þeir hefðu vitað að það ætti ekki að sigla í dag. Þeir vissu auðvitað ekkert að þetta stæði til enda er aldrei haft samráð við okkur,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar í samtali við Vísi. Hún segir ákvörðunina hafa verið tekna með engum fyrirvara seint í gærkvöldi. „Við lásum bara um þetta í fréttamiðlum, við fengum enga tilkynningu fyrr en daginn eftir þegar sveitarstjóri Reykhólahrepps kvartaði til Vegagerðarinnar.“ Tilkynnt var seint í gærkvöldi að Baldur sem allajafna siglir áætlunarsiglingum um Breiðafjörð, verði send til Vestmannaeyja tímabundið vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Mikið rót hefur verið á samgöngum til Vestmannaeyja eftir að bilun kom upp í Herjólfi og í dæluskipi í Landeyjahöfn þannig að Herjólfur hefur siglt lengri leið til Þorlákshafnar á einni vél. Samkvæmt upplýsingum frá Orkubúi Vestfjarða eru starfsmennirnir í Flatey við vinnu í orkuskiptaverkefni. Þeir hafi átt að koma aftur til lands í dag en verði reddað í land með tryllu á morgun. Lausn sem enginn sé sáttur við Gerður gerir málinu skil í Facebook færslu og tekur fram að hún hafi mikla samúð með Eyjamönnum, en bendir á að Baldur sé ekki lausnin. Hún segir óásættanlegt að Baldur sé tekinn aftur og aftur úr siglingum yfir Breiðafjörð eins og hann skipti engu máli. Um er að ræða annað skiptið á stuttum tíma sem Baldur er sendur suður. Gerður segir þetta fela í sér mikið óhagræði og mikinn kostnað og bendir hún meðal annars á ferðalög með afurðir til Vestfjarða sem taki nú mun lengri tíma en ella. En hvað er til ráða? „Það þarf að vera hægt að stóla á plön og Herjólfur þriðji sem hefur legið í Sundahöfn er mun hentugra skip sem varaferja fyrir Herjólf. Vestmannaeyingar hafa kallað eftir því og mér skilst að það sé í vinnslu, en að hann sé ekki haffær sem stendur, en að það standi til bóta. Það er lausnin sem við höfum bent á, því Baldur hentar ekki í siglingar á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja, hann tekur of fáa farþega og of fáa bíla, hann hentar mikið betur á Breiðafirði. Þetta er lausn sem enginn er ánægður með, hvorki við né Vestmannaeyingar.“
Vesturbyggð Samgöngur Ferjan Baldur Vestmannaeyjar Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Sjá meira