Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Samúel Karl Ólason skrifar 30. apríl 2026 11:22 Dmitrí Peskóv og Vladimír Pútín. Peskóv, talsmaður forsetans, segir að rússneska Afríkudeildin muni ekki yfirgefa Malí. EPA/MIKHAIL METZEL, Sputnik Rússneskir málaliðar, á vegum yfirvalda í Rússlandi, munu ekki yfirgefa Malí. Þar munu þeir áfram aðstoða herforingjastjórn landsins við að berjast gegn uppreisnar- og vígamönnum. Malí og rússneska Afríkudeildin svokallaða bauð afhroð í skyndisókn vígamanna víða um landið um síðustu helgi.
Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, lýsti því yfir í morgun að vera Afríkudeildarinnar í Malí væri stjórnvöldum þar nauðsynleg. Rússar myndu halda baráttunni gegn öfgum og hryðjuverkastarfsemi í Malí áfram. Leiðtogar uppreisnarhóps Túarega og vígahóps sem tengist Al-Qaeda hafa kallað eftir því að Rússar yfirgefi landið og hætti aðstoðinni við herforingjastjórnina. Þessir hópar gerðu um síðustu helgi árásir víðs vegar um Malí og virðast hafa náð stjórn á stórum hlutum landsins. Árásirnar voru að miklu leyti bundnar við norðurhluta Malí, þar sem meðlimir uppreisnarhóps Túarega sem kallast Þjóðfrelsisfylking Azawad (e. Azawad Liberation Front, FLA), og vígahóps sem heitir Jama'at Nusrat al-Islam wal-Muslimin (JNIM) eru hvað virkastir. Þeir gerðu þó einnig árásir í og nærri Bamako, höfuðborg Malí, en í einni þeirra réðu þeir Sadio Camara, varnarmálaráðherra Malí og náinn bandamanna Rússa, af dögum. Þó nokkrir bæir og borgir Malí féllu í hendur FLA og JNIM en í einhverjum tilfellum gerðu vígamennirnir samkomulag við meðlimi Afríkudeildarinnar um að þeir hörfuðu frá varðstöðvum sínum í tilteknum borgum og var þeim fylgt þaðan af vígamönnum. Helst munar um borgina Kidal í norðurhluta landsins. Stjórnarherinn og Afríkudeildin tóku Kidal úr höndum uppreisnarmanna árið 2023. Þá markaði það mikinn og góðan áfanga í baráttunni gegn Túaregum og JNIM. Á dögunum var ítarlega fjallað um árásir helgarinnar og stöðuna í Malí á Vísi. Peskóv sagði að vígamennirnir hefðu lagt fram þá kröfu að Rússar færu frá Malí af því þeir töldu að herforingjastjórnin gæti ekki haldið völdum án aðstoðar þeirra. Talið er að allt að 2.500 rússneskir málaliðar Afríkudeildarinnar séu í Malí. Þar hafa þeir ítrekað verið sakaðir um ýmis ódæði en sérfræðingar hafa sagt að harðneskja Rússa og ódæði þeirra hafi auðveldað víga- og uppreisnarhópum að laða að nýja menn. Rússar segjast hafa komið í veg fyrir valdarán og að meðlimir Afríkudeildarinnar hafi bjargað fjölda mannslífa. Þá hefur varnarmálaráðuneyti Rússlands haldið því fram að úkraínskir og evrópskir, aðallega franskir, ráðgjafar hafi aðstoðað uppreisnar- og vígamennina. Engar upplýsingar hafa litið dagsins ljós sem styðja þær yfirlýsingar. Árásir FLA og JNIM hafa haldið áfram í Malí. Myndbönd sem birt voru á samfélagsmiðlum í morgun benda til þess að þeir hafi tekið herstöð í Hombori, sem er í miðju landinu. #Mali images du JNIM à Hombori https://t.co/NXkmq0SHwr pic.twitter.com/s1bb7BEWRD— Wassim Nasr (@SimNasr) April 30, 2026
Malí Rússland Hernaður Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira