Samfélagið í fyrsta sæti Daði Pálsson skrifar 30. apríl 2026 08:42 Öll fyrirtæki reiða sig á stuðning samfélagsins. Í stórum verkefnum sem hafa áhrif á nærumhverfi fólks er mikilvægt að íbúar upplifi að á þá sé hlustað, að upplýsingaflæði sé skýrt og að skoðanir þeirra séu virtar. Að mínu mati er þetta ein af lykilforsendum þess að byggja upp traust og byggja varanleg verðmæti. Í greinum eins og fiskeldi, þar sem verkefni eru stór og sýnileg, verður þátttaka samfélagsins að vera í forgangi. Á sama tíma er mikilvægt að viðurkenna að slíkar framkvæmdir vekja oft upp spurningar og jafnvel áhyggjur. Áhyggjur af umhverfisáhrifum, nýtingu auðlinda og breytingum á nærumhverfi eru eðlilegur hluti af umræðunni. Því skiptir máli að fyrirtæki sýni með skýrum hætti að þau bregðist við slíkum ábendingum af ábyrð og séu tilbúin að eiga opið samtal. Þau fyrirtæki sem ná að byggja upp opið og virkt samtal við samfélagið frá fyrstu stigum verkefna eru líklegri til að draga úr áhættu, bæta ákvarðanatöku og skapa traust sem skiptir máli til lengri tíma. Það gerist þó ekki með yfirlýsingum einum saman, heldur með reglulegri upplýsingagjöf og samtali. Íbúar vilja innsýn í verkefnin Að koma fram á sjónarsviðið með nýtt verkefni, með nýja uppbyggingu og markvissa fjárfestingu inn í rótgróið samfélag, svipar til breytingastjórnunar. Þegar íbúar skynja að verkefnið sé unnið í samvinnu við samfélagið, en ekki einhliða mótað, verða framvinda hraðari og umræðan uppbyggilegri. Góðar fyrirætlanir er aðeins byrjunin, traust myndast út frá aðgerðum. Gagnsæi, hreinskilni og heiðarleg samskipti er grunnurinn að trausti og árangri. Íbúar vilja meira en kynningar og tilkynningar. Þeir vilja innsýn. Þeir vilja fá tækifæri til að heimsækja, spyrja og sjá uppbygginguna með eigin augum. Þegar það gerist verður verkefnið hluti af samfélaginu fremur en eitthvað aðskilið frá því. Samfélagsmiðlar geta verið gagnlegir í þessu samhengi. Þeir gera fyrirtækjum kleift að miðla upplýsingum reglulega, sýna framvindu og setja andlit á verkefnin. Á sama tíma er mikilvægt að viðurkenna að umræða á slíkum miðlum getur orðið einhliða eða byggð á takmörkuðum upplýsingum. Því þarf að leggja áherslu á skýra og heiðarlega miðlun sem stenst gagnrýna skoðun. Aukin fjölbreytni – aukin tækifæri Áhrifin af uppbyggingu birtast einnig í atvinnulífi. Þegar ný störf verða til styrkist staðbundið samfélag og áhrifn dreifast um hagkerfið. Óbein áhrif geta verið veruleg, bæði fyrir fyrirtæki og opinbera aðila. Það er þó ekki sjálfgefið að nýjar atvinnugreinar séu alltaf taldir jákvæðir. Sumir óttast að þeir geti haft neikvæð áhrif á þær sem þegar eru til staðar eða breytt jafnvægi í samfélaginu. Að mínu mati er lykilatriði að horfa á þetta sem samspil fremur en samkeppni. Ný starfsemi getur styrkt þá sem fyrir eru, aukið fjölbreytni og skapað betri forsendur fyrir þjónustu og innviði sem nýtast öllum. Fyrir smærri samfélög getur aukin umsvif haft afgerandi áhrif. Hún getur réttlætt uppbyggingu innviða sem annars hefðu setið eftir og þá um leið bætt lífsgæði íbúa til lengri tíma. Slík þróun þarf þó ávallt að fara fram í jafnvægi við bæði samfélag og náttúru. Samstarf og ábyrgð Samskipti fyrirtækja og sveitarfélaga skipta hér miklu máli. Skýr og fyrirsjáanleg upplýsingagjöf gera sveitarfélögum kleift að undirbúa sig betur, stýra væntingum og bregðast við á réttum tíma. Þegar upplýsingaflæði er gott dregur úr óvissu og núningi, sem gagnast öllum aðilum. Á sama tíma er mikilvægt að hafa í huga að traust er ekki sjálfgefið. Það byggist upp með tímanum og getur tapast hratt ef ekki er staðið rétt að málum. Því þarf að leiða stór verkefni af ábyrgð og með langtímahugsun að leiðarljósi. Þegar þeir sem leiða þróun á viðamiklu verkefni hafa persónuleg tengsl við svæðið verður ábyrgðin meiri og vandasamari. Ákvarðanir eru líklegri til að endurspegla langtímahugsun og raunveruleg verðmæti fremur en skammtímahagnað. Markmiðið er einfalt: stöðugt fyrirtæki sem skapar varanleg störf og styrkir samfélagið sem það er hluti af. Að mínu mati ræðst árangurinn af einu lykilatriði: trausti. En traust verður ekki til á einni nóttu. Það byggist upp í skrefum, með gagnsæi, samvinnu og raunverulegum mannlegum samskiptum. Höfundur er framkvæmdastjóri Laxeyjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar