HK á skilið meiri metnað Gunnar Gylfason skrifar 29. apríl 2026 13:47 Nú fer að styttast í að gengið verði til samninga við verktaka um byggingu stúku við nýjan knattspyrnuvöll við Kórinn, stúku sem því miður verður of lítil frá fyrsta degi. Ég er áhugamaður um íþróttamannvirki og kannski sérstaklega knattspyrnumannvirki enda starfað með einum eða öðrum hætti við knattspyrnu í tæp 40 ár, hérlendis og erlendis. Ég vill sem bestan aðbúnað fyrir allt það góða íþróttafólk sem er í Kópavogi, þar með talið fótboltafólk í HK, en metnaður meirihlutans í bæjarstjórn Kópavogs er greinilega ekki þar. Ég er líka skattgreiðandi í Kópavogi sem vill að það sé farið vel með skattféð mitt og byggð íþróttamannvirki sem mæta þröfum þeirra sem þar eiga að æfa og keppa næstu áratugina, ekki bara byggja til að tikka í box rétt fyrir kosningar. Það væri líka hægt að gagnrýna staðsetningu stúkurnar á svæðinu, og að þessi bygging sé ekki hönnuð og skipulögð sem hluti af einhverri stærri heild og þá sem hluti af þjónustu og mannlífsmiðstöð i Kórnum svipað og gert var í Úlfarsárdalnum hjá Fram og heppnaðist frábærlega og ýmislegt fleira mætti gagnrýna í ferlinu öllu en ég ætla ekki að gera það hér heldur bara benda á aðstöðu íþróttafólksins, fótboltastrákanna og steplnanna í HK, hún verður nefnilega lítil og léleg í þessari byggingu. Í þessari nýju stúku er gert ráðfyrir þremur búningsklefum á 200 fermetrum, hver um sig um 66 fermetrar á stærð með sturtum, þurksvæði, klósettum og búningsaðstöðu meðtalinni og nú hefst samanburðurinn. Búningsklefarnir á Kópavogsvelli þar sem Breiðablik hefur sína aðstöðu og var byggð 2006-7 eru samtals um 280 fermetar og “heimaklefi” hvors liðs fyrir sig rúmlega 80 fermetrar rúmlega 20% stærri en klefarnir verða í HK. Klefarnir á Kópavogsvelli eru samt of litlir til að rúma alla leikmenn liðanna þannig að vel sé og ekki fá allir leikmenn sæti eða bás í þeim. HK-ingar munu því þurfa að sita mun þéttar en það eða hleypa inn í hollum. Í nýrri stúku sem er verið að reisa á KA svæðinu á Akureyri er meiri metnaður, heimaklefarnir þar eru tæpir 90 fermetrar, á Akranesi voru teknir nýjir klefar í notkun í vetur sem eru rúmlega 90 fermetrar, í Vestmannaeyjum þar sem byggð var stúka fyrir nokkrum árum eru heimaklefarnir um 110 fermetrar hvor klefi, í Kópavogi, hjá HK, eiga 66 fermetrar að duga. Samt eru jafnmargir leikmenn í liðunum, auk þjálfara, búninga og sjúkrateyma. Þetta er að mínu mati metnaðarleysi af hálfu bæjarstjórnar fyrir hönd HK. Bæjarstjórinn mun væntanlega benda á mannvirkjareglugerðir KSÍ sem kveða á um lágmarksaðstöðu en það er nákvæmlega það sem það er, lágmarksaðstaða, það má gera betur, önnur bæjarfélög gera það en ekki Kópavogur. Þessi aðstaða sem bæjarstjórinn ætlar að bjóða knattspyrnufólki í HK er of lítil og léleg og rétt er að hafa í huga að þessi bygging mun standa og vera í notkun í áratugi, og alltaf vera of lítil og léleg. Síðustu tölur sem ég heyrði um kostnað við byggingu stúkunar voru 2,2 milljarðar. Já það er fullt af peningum og þegar verið er að tala um að byggja lágmarksmannvirki sem frá fyrsta degi verður of lítið fyrir þá starfsemi sem þar á að vera er ekki að mínu mati verið að fara vel með fjármuni okkar skattgreiðanda í Kópavogi. Er þá ekki frekar ráð að eyða aðeins meiri pening og byggja gott mannvirki sem Kópavogsbúar og HK-ingar geta verið stoltir af næstu áratugina, nýtist efri byggðum Kópavogs betur og býr vel að og veitir íþróttafólkinu í HK samkeppnishæfa aðstöðu. Það ætti að vera metnaður allra Kópavogsbúa, líka þeirra sem eru í núverandi meirihluta í bæjarstjórn. Höfundur hefur áratuga reynslu af störfum tengdum knattspyrnu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar