Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 29. apríl 2026 07:35 Leiguglæpir eru orðnir að iðnaði í sænskum undirheimum. EPA/Jeroen Jumelet Tæplega þrjúhundruð hafa verið handteknir undanfarið ár, meðal annars hér á landi að því er virðist, í alþjóðlegri aðgerð sem leidd var af sænsku lögreglunni og er ætlað að tækla það þegar ungmenni eru send á milli landa til að fremja glæpi gegn greiðslu.
Stundum er um morð og alvarlega ofbeldisglæpi að ræða og ungmennin eru í mörgum tilfellum undir lögaldri. Aðgerðin, sem kallast „Grimm“ upp á sænsku var unnin í samvinnu við tíu löggæslustofnanir í Evrópu að því er segir í tilkynningu frá sænsku lögreglunni en um helmingur þeirra handteknu er sagður hafa einhverskonar tengsl við sænska undirheima. Ekki er tekið fram hversu margir hafi verið handteknir í tengslum við þessi mál hér á landi. Eitt slíkt mál komst þó fréttirnar þegar þrír einstaklingar, einn þeirra frá Svíþjóð, voru ákærðir fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu gegn greiðslu. Lögreglan þakkar árangurinn meðal annars aukinni samvinnu við tæknifyrirtækin í álfunni, fyrirtæki á borð við Google, TikTok og Snapchat, en samskipti glæpamannanna og skipulagning fer að mestu fram í gegnum netið. Aukin samvinna lögregluembætta í málinu hefur einnig haft sitt að segja segir Theodor Smedius frá sænsku lögreglunni í tilkynningunni en betur má ef duga skal segir hann og bætir við að enn vanti töluvert upp á samvinnu frá sumum tæknifyrirtækjum. Talið er að af hinum tæplega þrjúhundruð handteknu megi telja sex til höfuðpaura sem hafi verið atkvæðamiklir við þessa iðju og skipulagningu hennar, en alls hefur lögregla fundið um 14 þúsund reikninga á samfélagsmiðlum þar sem rætt er um leigu á ungmennum til þess að fremja glæpi.
Svíþjóð Lögreglumál Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Sjá meira