Joshua snýr aftur og mætir Fury loksins í hringnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. apríl 2026 23:18 Joshua hefur ekki barist síðan hann lenti í bílslysi en fyrrum heimsmeistarinn tók áskorun Tyson Fury. Richard Pelham/Getty Images for Netflix Anthony Joshua snýr aftur í hnefaleikahringinn síðar á þessu ári og mætir loksins Tyson Fury.
Fyrrum heimsmeistararnir eru báðir komnir yfir sitt besta skeið en beðið hefur verið eftir bardaga á milli þeirra í mörg ár. Staðsetning og tímasetning liggja ekki fyrir að svo stöddu en stefnt er að því að bardaginn fari fram fyrir lok árs. Joshua er að snúa aftur til átaka eftir að hafa lent í bílslysi undir lok síðasta árs. Hann var þá nýbúinn að berjast við samfélagsmiðlastjörnuna Jake Paul en lenti í bílslysi í heimalandi sínu Nígeríu. Joshua slapp óhultur en tveir félagar hans létust. Þar sem Joshua hefur ekki barist í töluvert langan tíma mun hann undirbúa sig fyrir stóra bardagann gegn Fury með því að mæta auðveldari andstæðingi, hinum albanska Kristian Prenga, í júlí. Ef ekkert fer úrskeiðis þar mun Joshua svo mæta Fury. Fury og Joshua eru báðir fyrrum heimsmeistarar í þungavigt en hafa aldrei mæst í hringnum. Þeir voru með skipulagðan bardaga árið 2021. Fury var þá ríkjandi WBC heimsmeistari og hafði aldrei tapað bardaga. Joshua var hins vegar ríkjandi heimsmeistari hjá hinum þremur hnefaleikasamböndunum, WBA, IBF og WBO. Þá skarst hins vegar Deontay Wilder í leikinn og kærði bardagann, með þeirri niðurstöðu að Wilder mætti Joshua í staðinn. Svo kom Oleksandr Usyk inn á sjónarsviðið. Joshua tapaði tveimur bardögum gegn honum árið 2021 og 2022. Fury tapaði einnig tvisvar fyrir honum árið 2024 en sneri aftur í hringinn fyrr á þessu ári og sigraði Arslanbek Makhmudov. Fury skoraði á Joshua eftir síðasta bardaga sinn. Mark Robinson/Getty Images Eftir að hafa unnið endurkomubardagann ákvað Fury að skora Anthony Joshua á hólm. Það hefur nú tekist og samningar hafa náðst. Tveir af bestu hnefaleikaköppum sinnar kynslóðar munu því loks mætast, þó þeir séu báðir komnir vel yfir sitt besta skeið og hafi misst krúnuna til Usyk.
Box Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Sjá meira