Körfubolti

Jakob og Linards fram­lengja veru sína í KR

Aron Guðmundsson skrifar
Jakob og Linards fara ekki fet
Jakob og Linards fara ekki fet Mynd: KR

Jakob Örn Sigurðarson hefur framlengt samning sinn sem þjálfari karlaliðs KR í körfubolta til næstu þriggja ára. Samhliða því hefur lykilmaður liðsins Linards Jaunzems framlengt veru sína hjá félaginu.

Frá þessu greinir körfuknattleiksdeild KR í færslu á samfélagsmiðlum en KR varð bikarmeistari á tímabilinu og féll úr leik gegn Stjörnunnu í átta liða úrslitum Bónus deildarinnar nú fyrir skemmstu. 

Jakob hefur verið þjálfari liðsins undanfarin þrjú ár og samhliða því er hann framkvæmdastjóri körfuknattleiksdeildar KR.  

,,Ég er gríðarlega ánægður og stoltur að halda áfram sem þjálfari meistaraflokks KR. Þakklátur traustinu sem stjórn sýnir mér í að leiða liðið áfram næstu árin. Liðið hefur tekið skref í rétta átt seinustu tímabil og markmiðin eru skýr, að koma KR aftur á toppinn í íslenskum körfubolta,” lætur Jakob hafa eftir sér við þessi tímamót.

Linard Jaunzems ætlar líka að taka slaginn með KR á næsta tímabili en þessi 30 ára gamli letti var með 22,2 stig að meðaltali í leik á tímabilinu, 6,5 fráköst og 3,1 stoðsendingar. Hann var valinn besti erlendi leikmaður Bónus deildarinnar. 

KR-ingar boða frekari tíðindi af leikmannamálum hjá bæði karla- og kvennaliði félagsins á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×