Furða sig á tveggja leikja fyrirkomulaginu í Evrópubikarnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. apríl 2026 13:18 Fanney Inga Birkisdóttir mun standa á milli stanganna í tveimur úrslitaleikjum með Hacken. Getty/Alex Grimm Söguleg stund mun eiga sér stað á morgun þegar fyrsti úrslitaleikur Evrópubikars kvenna verður spilaður. Það vekur hins vegar furðu að liðin muni svo mætast í öðrum úrslitaleik í næstu viku.
Sænsku liðin Hammarby og Hacken mætast í úrslitaeinvígi nýju Evrópukeppninnar. Þrjár íslenskar landsliðskonur verða þar í eldlínunni. Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir eru leikmenn Hacken en Guðrún Arnardóttir er leikmaður Hammarby. Fyrri úrslitaleikurinn fer fram á heimavelli Hammarby á morgun en seinni leikurinn verður svo spilaður á heimavelli Hacken í næstu viku. Sænskar landsliðskonur furða sig á þessu fyrirkomulagi. „Það er skrítið að spila til úrslita með tveggja leikja einvígi,“ segir Julia Zigiotti. „Þetta kom mér svolítið á óvart. Ég bjóst bara við því að þetta væri einn úrslitaleikur á hlutlausum velli,“ segir Stina Blackstenius. Thelma Karen í leik með BK Hacken gegn Breiðabliki í Evrópubikarnum fyrr í vetur.vísir „Við höfum séð það á viðbrögðum fólks að þetta er furðulegt. Við erum vön þessu í átta liða og undanúrslitum en í úrslitunum sjálfum… Þetta er skrítið, það verður að segjast. En þetta er allavega skárra en að eitt liðið sé á heimavelli og fái forskotið sem fylgir því,“ segir Fridolina Rolfö. „Fyrir mér á úrslitaleikur bara að vera einn leikur, annars er þetta ekki úrslitaleikur. Þú átt ekki að fá annan séns í úrslitaleik,“ segir Matilda Vinberg. „Það eru bæði kostir og gallar við þetta. Fleira fólk getur mætt á völlinn ef það eru tveir leikir,“ segir Smilla Holmberg, sú eina sem sá jákvæðu hliðina.
Sænski boltinn Evrópubikar kvenna í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira