Hvað kom fyrir þig í fyrsta kafla ævisögu þinnar? Diljá Ámundadóttir Zoega skrifar 24. apríl 2026 08:45 Við erum með minningar og sögur geymdar út um allt í líkamanum; heilanum og taugakerfinu. Sumar hverjar eru því miður mjög þungbærar minningar. Þetta eru óþægilegar minningar og ýta undir neikvæðar tilfinningar - svo það sem við eigum það til að gera er að ýta þeim frá okkur. Bæla þær niður. Ef við sjáum fyrir okkur að lífið sé saga - okkar lífsins saga - þá er hún væntanlega ekki bara ein bók. Þetta verða oft að fleiri fleiri bókum eða bindum eins og það heitir víst í bókabransanum. Enda eru þetta ótal margar sögur í einni sögu. Það sem ég hef komist að er að til að vinna úr þungbærum lífsreynslum í fortíð þá þarf ég að skilja með hvaða hætti þær er að hafa áhrif á mig í dag. Og það er ekki alltaf einfalt. Það getur nefnilega verið að eitthvað sem gerðist í bókabindi nr. 1 -kafla 12 sé að hafa áhrif á framvindu söguþráðarins í bókabindi nr. 4 - kafla 5. Varnarhættir sem ég skapaði mér í óbærilega erfiðum aðstæðum á þessum stað í lífsins sögu minni geta fylgt mér inn í fullorðinsárin og þar geta þeir orðið að hindrunum.Við verðum nefnilega að skilja afhverju við bregðumst stundum við aðstæðum í nútímanum á vissan hátt vegna gamalla sára á taugakerfinu. Það getum við gert með því að fletta upp í sögunni okkar og setja í samhengi - og skilja það. Í sumum tilfellum þurfum við meira að segja að fletta upp í bókabindum foreldra okkar eða bókum ömmum okkar og afa til að skilja okkur sjálf í dag.Þá getum við fyrst farið að upplifa heilun. Við getum líka fært þessar uppflettingar í lífsins sögunni yfir á annað fólk. Það er að segja þeirra sögu. Fullt af fólki sem við erum að umgangast í dag höfum við bara kynnst tiltölulega nýlega og höfum ekki hugmynd um hvað hefur gerst í fyrri bókabindum þeirra lífs. Og allt og oft höfum við óþarflega sterkar skoðanir á þeirra hegðun í dag. Dæmum þau. Tökum sem dæmi mjög drukkna konu á barnum, hún á erfitt með að halda jafnvægi og dettur jafnvel í gólfið. Konan sem er að reyna að fara í sleik við mann og annan við barborðið. Við þurfum að hætta að segja: Hvað er að þessari konu? Afhverju er hún svona full og lauslát?Við eigum frekar að spyrja: Hvað kom fyrir hana? Það er nefnilega mjög líklegt að það hafi einhver verið vondur við hana í einhverjum kaflanum í fyrri bindum í bókaröðinni um líf hennar. Kannski var henni nauðgað af stráknum sem hún var svo skotin í í tjaldi um verslunarmnnahelgina. Eða jafnvel á hún sögu um að einhver í fjölskyldunni hennar, sem hún treysti, hafi snert hana á óviðeigandi stöðum ítrekað, yfir lengra tímabil, þegar hún var bara barn.Hegðunin á barnum er afleiðing þess. Svo er það karlinn sem er alltaf að vinna og heldur sér mjög uppteknum hverja vakandi stund. Ef það eru ekki langir dagar í vinnunni þá er það ræktin. Hann á erfitt með að tengjast maka sínum og börnum. Hann faðmar ekki né sýnir tilfinningar. Nema kannski smávegis þegar hann er undir áhrifum. Þá getur hann orðið mjög nasty líka. Hvað ætli að hafi komið fyrir hann í fyrsta bindi í kafla 2 til 14? Hvaða sögur hafa þessir kaflar að geyma? Mögulega voru þetta sögur af aðstæðum þar sem tengslamyndun við hans eigin föður var lítil sem engin. Eða saga af kynferðisofbeldi í aðstæðum sem hann hann taldi sig vera í öryggi.Það að skilja að það er ekki bara eitthvað að mér eða annarri manneskju, heldur kom mögulega eitthvað fyrir mig eða hana, getur dregið úr fordómum og dómhörku. Það felst mun meiri virðing og manngæska í því að hugsa og skilja þetta í því samhengi. Við þurfum að normalisera það að skilja stóra samhengið. Lesa alla söguna. Stundum er hlustun og skilningur það eina sem við þurfum til að lina þjáninguna. ÉG LOFA hlusta á söguna þína, elsku barn. ÉG LOFA að skilja þig, kæra fullorðna manneskja, sem bregst stundum við eins og barn í nútíð, af því að það kom eitthvað fyrir þig í fortíð.Þessi grein er hluti af ÉG LOFA átki Barnaheilla. Höfundur er varaþingmaður, guðfræðinemi, með diplómu á meistarastigi í sálgæslufræðum og diplómu í áhættuhegðun og velferð barna og ungmenna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Ámundadóttir Zoëga Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar