Öruggt húsnæði jafngildir mannréttindum Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 23. apríl 2026 08:32 Öruggt húsnæði er ein af grunnforsendum þess að fólk geti byggt upp líf sitt með reisn. Og þegar húsnæðiskostnaður hækkar hraðar en það sem getur talist sjálfbært verða húsnæðismál að félagslegu réttlætismáli. Óöryggi á þessu sviði leiðir til kvíða og jafnvel vonleysis. Þess vegna skiptir trúverðug efnahagsstjórn og markvissar aðgerðir til að tryggja stöðugleika á fasteignamarkaði verulegu máli. Slíkar aðgerðir snúast ekki eingöngu um vísitölur, vexti og hagspár heldur um það hvort heimili landsins hafi raunverulegt svigrúm til að búa við öryggi. Tillögur Framsóknar Nýkynntar tillögur Framsóknar byggja á þeirri sýn að efnahagslegur stöðugleiki sé forsenda velferðar. Honum verður ekki náð nema með ábyrgum aðgerðum, víðtæku samráði og því að stjórnvöld meti hlutlægt og markvisst áhrif ákvarðana ríkisins á heimili og fyrirtæki. Í ofangreindu ljósi hefur Framsókn lagt fram sex tillögur undir formerkjum nýrrar þjóðarsáttar um stöðugleika. Þessar tillögur varða samvinnu og samtal hagaðila, ábyrgara verklag í opinberum fjármálum og tímabundið skjól fyrir heimili og fyrirtæki með tímabundinni lækkun matarverðs og bifreiðakostnaðar, auk aðgerða á leigumarkaði. Vonandi náum við góðu samtali við hagaðila um þær á næstu dögum og vikum. Leigumarkaðurinn skiptir þúsundir heimila máli Eitt mikilvægasta atriðið í tillögum Framsóknar er aukin vernd fyrir leigjendur á húsnæðismarkaði. Í kjölfar lagabreytinga fyrr á þessu ári sem breyta skattstofni leigutekna blasir við að leiguverð muni að óbreyttu hækka um 5% á næstunni. Þess vegna felur ein tillaga Framsóknar í sér að hækkun skattlagningar leigutekna verði dregin til baka til að minnka þrýsting á leiguverð. Þetta er í grunninn tiltölulega einfalt: ef stjórnvöld hækka kostnað á fasteigna- eða leigumarkaði er óhjákvæmilegt annað en að hann skili sér áfram út í verðlagið, meðal annars til leigjenda. Leigjendur eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu þegar verðbólga er þrálát og vextir háir. Margir hafa ekki svigrúm til að mæta enn hærri leigu og enn síður að fara inn á fasteignamarkaðinn. Fyrir ungt fólk, einstæða foreldra, námsfólk og tekjulægri heimili getur lítil hækkun haft mikil áhrif. Þegar húsnæðiskostnaður hækkar stöðugt minnkar svigrúm til annarra nauðsynja. Þá verður erfiðara að safna fyrir útborgun, erfiðara að koma undir sig fótunum og erfiðara að byggja upp fjárhagslegt öryggi. Ein aðgerð dugar ekki ein og sér Það er jákvætt að ríkisstjórnin hafi ákveðið að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið frá 1. maí til 31. ágúst. Framsókn styður allar tímabundnar aðgerðir sem geta létt undir með heimilum og fyrirtækjum á meðan við náum jafnvægi í hagkerfinu. En ein aðgerð dugar skammt. Það þarf fleiri aðgerðir sem vinna saman og styrkja hverja aðra. Það er einmitt hugsunin á bak við heildartillögupakka Framsóknar. Markmiðið er skýrt: að draga úr verðbólguþrýstingi, auka fyrirsjáanleika fyrir heimili og fyrirtæki og styrkja trúverðugleika efnahagsstjórnarinnar. Þessi blanda afmarkaðra aðgerða (lægri matar- og bifreiðakostnaður) og langtímahugsunar (samræmdari gjaldtaka hins opinbera, verðbólgusía og leiguvernd) er lykill að auknum árangri. Við verðum að vera samhent í þessu verkefni Við þurfum samtal, ekki til þess eins að kvarta og vera neikvæð, heldur til að ræða hugmyndir saman um hvernig við byggjum samfélagið áfram upp. Þar eru efnahagsmál lykilatriði. Við þurfum að hlusta á ólíkar raddir og við þurfum að átta okkur á því að aðgerðarleysi getur verið dýrkeypt. Þegar heimili missa fótfestuna á húsnæðismarkaði hefur það áhrif langt út fyrir buddu hvers og eins. Það hefur áhrif á líðan fólks, stöðu barna, getu til náms og vinnu og traust á samfélaginu. Verjum velferðina Húsnæðisöryggi er einn af mælikvörðum á það hvort samfélagið trúi á velferð og stöðugleika. Þess vegna þarf að verja leigjendur um leið og unnið er að stærri markmiðum um lægri verðbólgu, meiri fyrirsjáanleika og traustari undirstöður fyrir heimili og atvinnulíf. Við í Framsókn erum alltaf til í slíkt samtal. Gleðilegt sumar. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar