Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar 23. apríl 2026 08:03 Það færist í aukana í stjórnmála- og samfélagsumræðunni að athyglin á þann sem talar sé aðal markmiðið. Í stað þess að leggja áherslu á lausnir, stefnu eða málefnalega umræðu velja sumir að kasta fram umdeildum fullyrðingum, hrófla við sárum eða segja eitthvað sem þeir vita að muni vekja sterk viðbrögð. Þá fer boltinn af stað. Margir móðgast eðlilega eða er misboðið og svara af hörku. Fjölmiðlar grípa boltann á lofti og samfélagsmiðlar fyllast af orðaskaki. Á nokkrum mínútum eða klukkustundum er hrópandinn orðinn miðpunktur umræðunnar. Þetta er þekkt aðferðafræði. Í heimi þar sem athygli er í æ ríkari mæli markaðsvara umbunar kerfið þeim sem geta kallað fram sterkustu tilfinningarnar. Reiði dreifist hraðar en yfirvegun. Hneykslan fær fleiri smelli en rökfærsla. Skörp ögrun vekur meiri áhuga en yfirveguð umræða. Þess vegna sjáum við sífellt oftar að þeir sem kunna best að kveikja í umræðunni fá mestu athyglina og á henni þrífast margir án mikils innihalds. Eitt af því sem gerir þessa aðferð áhrifaríka er að mótherjar verða oft óafvitandi hluti af henni. Þeir sem eru mest ósáttir hlaupa fyrstir til að svara, fordæma og deila. Með því stækkar sviðið enn frekar. Það sem átti að vera andsvar verður að dreifingu. Það sem upphaflega átti að slökkva eldinn verður að súrefni á bálið. Þetta er alþekkt í alþjóðlegri umræðu. Stjórnmálamenn og áhrifavaldar hafa markvisst notað átök sem tæki til að stjórna dagskránni. Með því að vekja hneykslan færist athyglin frá erfiðum spurningum og kjarna máls um stefnu, árangur eða ábyrgð yfir í deilur um einstaklinga . Þannig telur sá sem kveikir eldana sig hafa unnið umræðuna, jafnvel þótt fáir séu honum sammála. Þess vegna verður fólk sem er annt um vandaða umræðu að spyrja sig: Er þessi stöðuga svörun að skila einhverju? Erum við að bæta samfélagið með því að hlaupa til í hvert sinn sem beitunni er kastað út? Eða erum við einfaldlega að viðhalda samkeppni um athygli þar sem hávaðinn ræður för en ekki innihaldið? Það þýðir ekki að fólk eigi að þegja yfir rangfærslum, afbökun og ósanngirni. Við þurfum hins vegar að velja betur hvenær og hvernig við bregðumst við. Hver einasta ögrun á skilið þjóðarumræðu. Sérhver yfirlýsing á ekki skilið fyrirsagnaflóð dögum saman. Sterkasta svarið er ekki alltaf reiðasta svarið. Stundum er áhrifaríkasta svarið að láta ekki athyglissjúka einræðumenn stýra umræðunni. Það er oftast mun sterkara og farsælla að ræða raunveruleg verkefni, raunverulegar lausnir og gildi sem skipta máli en að fara í manninn. Vegna þess að hávaðaseggurinn sækist eftir því einu að beina kastljósinu að sér. Ef við viljum betri umræðu verðum við að hætta að umbuna þeim sem kveikja elda sem hafa þann eina tilgang að lýsa upp ásjónu þeirra. Tökum ekki þátt í öskri án innhalds. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Helgi Pálmason Flokkur fólksins Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar