Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Sindri Sverrisson skrifar 22. apríl 2026 11:33 Samúel Kári Friðjónsson er mættur til Vals. Valur Samúel Kári Friðjónsson var í dag kynntur sem nýjasti leikmaður Vals. Félagið keypti miðjumanninn öfluga frá Stjörnunni og gerði samning við hann sem gildir út tímabilið 2028.
Kaupverðið er trúnaðarmál, segir í tilkynningu Vals, en samkvæmt upplýsingum Vísis greiða Valsmenn vel á annan tug milljóna króna fyrir leikmanninn. Þessi þrítugi leikmaður sneri heim til Íslands úr atvinnumennsku fyrir síðasta tímabil og var í stóru hlutverki hjá Garðbæingum í fyrra. Samningur hans við Stjörnuna átti að gilda út árið 2028. Atvinnumaður í mörg ár og var í HM-hópnum Samúel er að upplagi Keflvíkingur en fór ungur að árum í atvinnumennsku til Reading á Englandi og lék svo í Noregi, Þýskalandi og Grikklandi áður en hann kom til Stjörnunnar. Hann á að baki átta A-landsleiki og var í fyrsta og eina HM-hópi Íslands sem fór á heimsmeistaramótið í Rússlandi sumarið 2018, þá 22 ára gamall. Stjarnan og Valur verða bæði í eldlínunni annað kvöld en þá sækja Stjörnumenn Víkinga heim og Valsmenn taka á móti FH-ingum í leik sem gæti orðið frumraun Samúels í Valstreyjunni. Hemmi hrósar happi „Samúel er frábær leikmaður, heilbrigður karakter á flottum aldri. Hann hefur þau persónueinkenni sem ég vil sjá á miðjunni hjá okkur og passar mjög vel inn í það sem við erum að byggja upp. Með þessari viðbót er liðið farið að líta virkilega vel út hjá okkur og ég hlakka mikið til,“ segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, í tilkynningu. Gareth Owen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Val, bætir við: „Líkt og fram hefur komið erum við í Val á ákveðinni vegferð þar sem við erum að horfa meira til ungra leikmanna. Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta þarf auðvitað að vera góð blanda með reyndari mönnum. Þegar leikmaður með þá eiginleika og gæði sem Samúel býr yfir býðst þá er allt kapp lagt á að landa honum. Hann tikkar í mörg box hjá okkur og er hugsaður sem lykilmaður inni á miðjunni í því verkefni sem er framundan. Samúel er þekkt stærð í deildinni og mikill stríðsmaður sem mun styrkja liðið strax í baráttunni.“
Valur Stjarnan Besta deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira